Alþjóðlegi safnadagurinn | 18. maí 2026
til

Alþjóðlegi safnadagurinn | 18. maí 2026
Hafnarhús
til
Þann 18. maí verður Alþjóðlegi safnadagurinn 2026 haldinn hátíðlegur undir yfirskriftinni Söfn sem sameiningarafl í sundruðum heimi. Frítt er inn á allar sýningar Listasafns Reykjavíkur í tilefni dagsins.
Yfirstandandi sýningar:
HAFNARHÚS
Erró: Remix – ásamt úrvali af Víðáttum
Á þessari sýningu verða helstu verk listamannsins og tækifæri til að kynnast ólíkum viðfangsefnum hans svo sem ádeilu á neyslusamfélagið, pólitísk deilumál og þá ofgnótt upplýsinga sem einkennir nútíma samfélag.
–
KJARVALSSTAÐIR
Kjarval og 20. öldin: Þegar nútíminn lagði að
Á sýningunni getur að líta myndlistarverk íslenskra listamanna frá um sex áratuga skeiði eftir aldamótin 1900. Verkin spanna það tímabil sem listmálarinn Jóhannes S. Kjarval var starfandi. Þegar litið er á feril Kjarvals og hann speglaður í verkum samtíðarmanna hans sést hvernig myndlistin tekur breytingum og þróast.
Guðrún Kristjánsdóttir: Leiðir
Sýning Guðrúnar Kristjánsdóttur í Vestursal Kjarvalsstaða færir víðáttur náttúrunnar nær okkur. Guðrún hefur skapað sér sérstöðu í íslenskri myndlist með verkum sem skoða samband náttúru og manns, mótað af veðri og birtu á Íslandi. Hún nálgast náttúruna sem lifandi afl, þar sem kyrrð og kraftur mætast og óvænt fegurð birtist í hógværum augnablikum.
–
ÁSMUNDARSAFN
Ásmundur Sveinsson: Undraland
Á sýningunni hverfum við aftur í tímann og inn á vinnustofu Ásmundar. Við fáum tilfinningu fyrir því sem gerðist á bakvið tjöldin í leit listamannsins að útfærslu sem hentaði hverju sinni fyrir þær hugmyndir sem spruttu fram.
Undraland: Eftirstöðvar
Á sýningunni Eftirstöðvar í Ásmundarsafni eru sýnd verk sex listamanna sem fengu úthlutað vinnustofu á safninu en í þessu sérstaka verkefni Undraland- verk í vinnslu sem stóð yfir veturinn 2025-2026 fengu sex listamenn tækifæri til að vinna í nánum tengslum við rými safnsins, anda Ásmundar Sveinssonar og daglega starfsemi þess.
Undraland: Opin vinnustofa
Sýningin býður börnum, fjölskyldum og öllum sem eiga leið um safnið að taka þátt í skapandi ferli þar sem unnið er með form, efni og hugmyndir á opinn og aðgengilegan hátt. Í vinnustofunni er athyglinni beint að vinnuaðferðum Ásmundar Sveinssonar – hvernig hann vann í gegnum tilraunir, endurtekningar og náið samtal við efnið. Lögð er áhersla á einfaldan og fjölbreyttan efnivið og handverkslega nálgun, þar sem ferlið sjálft skiptir meira máli en endanleg niðurstaða.