Afmælisleiðsögn um höggmyndagarð Ásmundar Sveinssonar
til

Afmælisleiðsögn um höggmyndagarð Ásmundar Sveinssonar
Ásmundarsafn
til
Miðvikudagurinn 20. maí er afmælisdagur myndhöggvarans Ásmundar Sveinssonar (f.1893) og í tilefni þess býður Listasafn Reykjavíkur upp í fría leiðsögn um höggmyndagarð Ásmundar við Sigtún.
Skemmtileg leiðsögn fyrir alla aldurshópa þar sem við skoðum stytturnar í garðinum og fræðumst um litríkan feril þessa ástsæla listamanns.
Ásmundur lagði mikinn metnað og vinnu í að fullkomna höggmyndagarðinn við hús sitt í Sigtúni. Hann bætti við nýjum verkum eða stækkaði eldri verk og kom þeim upp í garðinum í varanlegu efni sem þoldu íslenska veðráttu.
Ásmundur ánafnaði Reykjavíkurborg listaverkasafn sitt og hús við Sigtún og er safnið nú hluti af Listasafni Reykjavíkur.