Fara beint í efni

Afhjúpun og afhending Kærleiks­kúl­unnar 2026

til

Afhjúpun og afhending Kærleikskúlunnar 2026

Afhjúpun og afhending Kærleikskúlunnar 2026

Hafnarhús

til

Verið velkomin á afhjúpun og afhendingu Kærleikskúlunnar 2026 í Hafnarhúsi Listasafns Reykjavíkur, miðvikudaginn 2. desember kl. 11:00.

Gló stuðningsfélag hefur staðið að útgáfu Kærleikskúlunnar frá árinu 2003. Tuttugasta og fjórða Kærleikskúlan verður afhjúpuð við hátíðlega athöfn og afhent fyrirmynd sem hefur stuðlað að aukinni þátttöku og bættum lífsgæðum fatlaðra barna og ungmenna.

Markús Þór Andrésson, safnstjóri Listasafns Reykjavíkur, kynnir listamann Kærleikskúlunnar 2026 en Listasafnið hefur frá upphafi veitt Gló aðstoð og leiðsögn við val á listamanni Kærleikskúlunnar. Biskup Ísland, Guðrún Karls Helgudóttir blessar Kærleikskúluna að vanda og tónlist flytur Bjöllukór Tónstofu Valgerðar. Rakel Björk Björnsdóttir, söng- og leikkona, flytur hugljúf jólalög.

Allur ágóði Kærleikskúlunnar rennur til starfsemi Gló í Reykjadal, þar sem fötluð börn og ungmenni fá tækifæri til að njóta sín á eigin forsendum, eignast vini og tilheyra vinasamfélagi jafningja. Sala Kærleikskúlunnar fer fram í völdum verslunum um land allt dagana 3.-23. desember og í vefverslun Gló - Kærleikskúlan.is

Léttar veitingar að athöfn lokinni.