Útilistaverkið Pollar eftir Elísabetu Brynhildardóttir vígt í Borgartúni 41

Með verkinu sameinast Reykjavíkurborg og lóðarhafar um að efla list í almannarými og skapa vandað og lifandi umhverfi fyrir íbúa og gesti borgarinnar. Verkið er í eigu lóðarhafa.
Útilistaverkið Pollar eftir listakonuna Elísabetu Brynhildardóttur var formlega vígt nú fyrir helgi við hátíðlega athöfn í Borgartúni 41, nýrri íbúðabyggð á gamla strætóreitnum í Laugarneshverfinu í Reykjavík.
Verkið Pollar var valið í kjölfar samkeppni um útilistaverk í Borgartúni. Þremur myndlistarmönnum var boðið að taka þátt í lokaðri samkeppni þar sem áhersla var lögð á listræn gæði, samhengi við staðinn og aðkomu almennings að verkinu.
Listaverkið samanstendur af þremur skúlptúrum úr ryðfríu stáli, sem eru líkt og þrír vatnspollar sem reistir hafa verið upp á rönd. Fljótandi í pollunum eru brot úr sögu hverfisins, sem birtast sem teikningar sem greyptar hafa verið í yfirborð þeirra. Hér má sjá lokk úr hári Hallgerðar, spýtnabrak úr Jamestown draugaskipinu og tusku úr þvottakörfu hinnar óheppnu þvottakonu sem drukknaði í Fúlutjarnarlæk. Yfirborð skúlptúranna er hápólerað og virkar sem spegill, þar sem endurkast sólar dregur upp síbreytilegar myndir eftir breytilegum takti árstíða og sólargangs.
Elísabet Brynhildardóttir (f. 1983) býr og starfar í Reykjavík. Hún vinnur með fjölbreytta miðla þó teikningar og skúlptúr séu þar mest áberandi. Í verkum sínum veltir hún fyrir sér sambandi okkar við efnisheiminn og þolmörkum þess, þar sem hugmyndir um hverfulleika og tíma eru áberandi. Pollar eru áhugavert og aðgengilegt listaverk sem bætist nú við flóru listaverka í borgarlandinu. Fólk á myndum: Jónas Þór Jónasson, lóðarhafi í Borgartúni, Elísabet Brynhildardóttir, myndlistarkona, Ísleifur Friðriksson, stálsmiður, Markús Þór Andrésson, safnstjóri, Sigrún Inga Hrólfsdóttir, verkefnastjóri listaverka í almannarými á uppbyggingarreitum.

