Tveir fyrir einn með Menningarkortinu á Kjarvalsstaði í apríl

Í apríl geta handhafar Menningarkorts Reykjavíkur boðið með sér gest á Listasafn Reykjavíkur á Kjarvalsstöðum.
Yfirstandandi sýningar á Kjarvalsstöðum eru:
Kjarval og 20. öldin: Þegar nútíminn lagði að
Á sýningunni getur að líta myndlistarverk íslenskra listamanna frá um sex áratuga skeiði eftir aldamótin 1900.
Verkin spanna það tímabil sem listmálarinn Jóhannes S. Kjarval var starfandi. Þegar litið er á feril Kjarvals og hann speglaður í verkum samtíðarmanna hans sést hvernig myndlistin tekur breytingum og þróast.
Guðrún Kristjánsdóttir: Leiðir
Sýning Guðrúnar Kristjánsdóttur í Vestursal Kjarvalsstaða færir víðáttur náttúrunnar nær okkur.
Guðrún hefur skapað sér sérstöðu í íslenskri myndlist með verkum sem skoða samband náttúru og manns, mótað af veðri og birtu á Íslandi. Hún nálgast náttúruna sem lifandi afl, þar sem kyrrð og kraftur mætast og óvænt fegurð birtist í hógværum augnablikum.