Valdatafl – Erró, skrá­setjari samtímans

Erró, Baie des Cochons. Á sýningunni Valdatafli má sjá með hvaða hætti listamaðurinn Erró (f. 1932) hefur alla tíð skrásett róstur eigin samtíma.

Valdatafl – Erró, skrásetjari samtímans

Hafnarhús

-

Á sýningunni Valdatafli má sjá með hvaða hætti listamaðurinn Erró (f. 1932) hefur alla tíð skrásett róstur eigin samtíma.

Hann dregur valdhafa, harðstjóra og stríðsherra inn í myndheim sinn þar sem þeir mæta skrumskælingu, háði og skopstælingu.

Í verkum sínum lítur Erró sögu heimsins gagnrýnum augum. Með því að blanda saman ólíkum og mótsagnakenndum myndbrotum leysir hann upp hefðbundna frásögn, snýr út úr orðræðu málafylgjumanna og grefur undan samfélagi sjónarspilsins. Upphafnar áróðursmyndir eru lagðar að jöfnu við niðrandi klisjur og öllu stigveldi snúið á haus. Sá heimur sem verk Errós endurspegla er eldfim blanda af ringulreið og mótsögnum, óhófi og ofbeldi.

Le Monde aujourd'hui / Heimurinn í dag, 2011.

„Mér finnst ég vera eins konar annálsritari, fréttamaður hjá stofnun sem geymir allar myndir heimsins og það er hlutverk mitt að fella þær saman.“ -Erró

Sýningin er samsett úr úrvali málverka, klippimynda, teikninga og þrykks þar sem Erró ber vitni um pólitískan veruleika síns tíma. Hún ber ennfremur með sér ógnvænlegan enduróm frá núverandi stríðsátökum í Úkraínu, fyrir botni Miðjarðarhafs og víðar þar sem óöld geisar í dag. Þá er undirliggjandi óttinn við þriðju heimstyrjöldina og stigmagnandi kjarnorkuvá.

Allan sinn langa listferil hefur Erró verið áhugasamur um hugmyndafræðileg og hernaðarleg átök sem einkennt hafa heimsfréttirnar á 20. og 21. öld. Tilvísanir í glæpi og hrylling nasismans koma fyrir á sýningunni sem og skírskotanir í langvarandi tímabil kalda stríðsins á milli Bandaríkjanna og Sovétríkjanna og bandamanna þeirra. Þá beinir Erró sjónum sínum að Persaflóastríðunum tveimur, átökum á milli Ísraels og Palestínu, valdaránum í Suður-Ameríku, Víetnamstríðinu, Kúbversku byltingunni og aðskilnaðarstefnu Suður-Afríku.

Verkin á sýningunni koma flest úr Errósafni Listasafns Reykjavíkur og spanna um sextíu ára feril listamannsins.

Myndir frá opnun

Ítarefni

Sýningarstjóri

Danielle Kvaran

Listamenn