Útskriftarhátíð LHÍ 2026

Útskriftarhátíð LHÍ 2026
-
Listasafn Reykjavíkur hýsir útskriftarsýningu nemenda á BA stigi í arkitektúrdeild, hönnunardeild og myndlistardeild Listaháskóla Íslands.
Á BA-útskriftarsýningu í arkitektúr, hönnun og myndlist árið 2026 sýna um 80 nemendur Listaháskólans verk sín.
Í gegnum nám sitt hafa nemendur þróað aðferðafræði sína og skilgreint og dýpkað áhugasvið sín. Verkin á sýningunni endurspegla þessa þróun, þar sem nýjustu rannsóknir þeirra fá form í ólíkum miðlum – í myndböndum, prentefni, teikningum, fatnaði, líkönum, þrívíðum verkum og vefsíðum.
Hver nemandi nálgast samtímann frá sínu sjónarhorni en í verkum á sýningunni má greina vangaveltur umbreytt miðlalandslag, handverkshefð, samband líkama og fatnaðar, samkennd með skordýrum, tækifæri fólgin í smáiðnaði, söfnunaráráttu, verbúðir, berskjöldun og yfirþyrmandi stofnanir.
Dagskrá viðburða og gjörninga sem verða á safninu á meðan á sýningu stendur verður auglýst þegar nær dregur.
Leiðsögn sýningastjóra verður fimmutdaginn 14. maí.
Ítarefni
Sýningarstjórar
Anna Karlsdóttir og Jan Dobrowolski, arkitektúr
Arnar Ásgeirsson, myndlist
Arnar Már Jónsson, fatahönnun
Björn Steinar Blumenstein, vöruhönnun
Hrefna Sigurðardóttir, grafísk hönnun