Fara beint í efni

Undraland: Opin vinnu­stofa

Undraland: Opin vinnustofa

Undraland: Opin vinnustofa

Ásmundarsafn

-

Verið hjartanlega velkomin í Undraland í Ásmundarsafni – opna vinnustofu þar sem áhersla er lögð á samveru og lifandi sköpun byggða á aðferðum Ásmundar Sveinssonar.

Undraland: Opin vinnustofa býður börnum, fjölskyldum og öllum sem eiga leið um safnið að taka þátt í skapandi ferli þar sem unnið er með form, efni og hugmyndir á opinn og aðgengilegan hátt. Í vinnustofunni er athyglinni beint að vinnuaðferðum Ásmundar Sveinssonar – hvernig hann vann í gegnum tilraunir, endurtekningar og náið samtal við efnið. Lögð er áhersla á einfaldan og fjölbreyttan efnivið og handverkslega nálgun, þar sem ferlið sjálft skiptir meira máli en endanleg niðurstaða.

Boðið verður upp á fjórar smiðjur sem verða opnar til skiptis á tímabilinu. Hver smiðja tekur fyrir ólíkar leiðir í sköpun og kynnir mismunandi nálganir að efninu. Gestir geta komið og farið að vild, dvalið stutt eða lengur og tekið þátt á sínum forsendum, einir, með öðrum eða í samveru ólíkra kynslóða. Undraland: Opin vinnustofa er vettvangur fyrir forvitni, leik og samveru. Hér skapast rými þar sem hugmyndir verða til í höndunum, samtalið fær að flæða og listsköpun verður lifandi, opin og á forsendum þátttakenda.

Undraland: Opin vinnustofa er sjálfstætt framhald verkefnisins Undraland: verk í vinnslu, þar sem sex listamönnum var boðið að flytja vinnustofur sínar inn í Ásmundarsafn yfir lengri tíma. Þar var megináhersla lögð á ferli listsköpunar og opið samtal milli listamanns, verka og gesta. Í opnu vinnustofunni er sú nálgun þróuð áfram, með sérstakri áherslu á þátttöku barna og fjölskyldna.