Hafnarhús
-
Sýningin „Tilurð Errós“ spannar mótunarár listamannsins frá 1955 til 1964, sem er margslungið og glæsilegt tímabil í list hans og evrópskri listasögu, þegar hann fyrstur listamanna skapar það sem nefnt hefur verið „samklippimálverk“. Á sýningunni kemur fram, í stórum dráttum, hvernig Erró smá saman hverfur frá expressjónískri myndgerð og byrjar, þess í stað, að vinna með samklippimyndir (collages) sem hann síðan málar eftirmyndir af á léreftið. Á þessum árum gerir hann ennfremur margvíslegar myndrænar tilraunir í málverkum samklippitextaverkum og samtýningsverkum.
Sögusviðið er margbrotið lista og menningarlíf Parísarborgar og síðar New York þar sem hann kynnist af eigin raun bandarísku neyslu- og fjölmiðlasamfélagi og hvetjandi listalífi..
Sýningarstjóri/-ar
Danielle Kvaran
Umfjöllun fjölmiðla
Listamenn
Boðskort