Sigurður Örlygsson

Sigurður Örlygsson

Sigurður Örlygsson

Kjarvalsstaðir

-

Á sýningunni eru 15 verk unnin á árinu 1986. Þrátt fyrir stakkaskiptin sem orðin eru á list Sigurðar, leyna sér ekki tengslin við það sem á undan er gengið. Það sem einfaldlega hefur gerst er að listamaðurinn hefur hlutgert táknmál sitt á áþreifanlegan hátt.

Sú þensla krafta og togstreytu sem listamaðurinn lét sér nægja að ýja að og bregða upp á tvívíðum fleti, stendur nú fullsköpuð í raunverulegt efni. Teikningin er orðin að málverki sem stefnir óðfluga í átt til höggmyndar..