Sigurður Guðmunds­son: Skúlptúr og nánd

Sigurður Guðmundsson: Skúlptúr og nánd

Sigurður Guðmundsson: Skúlptúr og nánd

Ásmundarsafn

-

Sigurður Guðmundsson (1942) lagði stund á listnám hér á landi á árunum 1960-1963 en hélt síðan til framhaldsnáms í Hollandi. Hann býr og starfar í Reykjavík, Kína og Hollandi. Víða er að finna stórar höggmyndir eftir Sigurð í opnu rými, bæði á Norðurlöndum og Mið-Evrópu.

Sigurður hefur unnið fjölmargar samkeppnir og má þar nefna samkeppni um útilistaverk við Barnaspítala Hringsins og útilistaverk á vegum Reykjavíkurborgar í tilefni aldamótanna.

Þegar Sigurður er spurður að því hvaða hugmynd liggi að baki verkum hans svarar hann á þessa leið: „Það er engin hugmynd á bak við listaverkið - ég reyni að vinna ekki með hugmyndir.“ Áhersla Sigurðar er á hið skáldlega með heimspekilegu ívafi. Hann vinnur í fjölda miðla, ljósmyndir, höggmyndir, teikningar, grafík og gjörninga, en hefur líka samið tónverk og skrifað bækur..

Myndir af sýningu

Myndir frá opnun

Ítarefni

Sýningarstjóri/-ar

Yean Fee Quay, Sigurður Trausti Traustason

Umfjöllun fjölmiðla

Listamenn

Boðskort