Sigurður Árni Sigurðs­son: ÓraVídd

Sigurður Árni Sigurðsson: ÓraVídd

Sigurður Árni Sigurðsson: ÓraVídd

Kjarvalsstaðir

-

Yfirlitssýning á verkum Sigurðar Árna Sigurðssonar. Sigurður Árni á að baki áhugaverðan listferil og hefur hann útfært verk sín með fjölbreyttum hætti. Hann hefur alla tíð spunnið stef við málverkið og tekist á við eiginleika þess miðils.

Verk hans fjalla um það hvernig við horfum á heiminn í kringum okkur, þau vekja spurningar um eðli og takmörk sjónsviðsins og hvernig það leggur grunn að heimsmynd okkar. Þar kallast á bæði það sem sést með berum augum og einnig það sem við sjáum ekki.

Í verkum listamannsins kemur berlega í ljós að við byggjum skynjun okkar á umhverfinu ekki síst á því sem við skáldum í eyðurnar. Tilraunir Sigurðar Árna hafa leitt hann á brautir fjarvíddar og rýmis, hvort heldur með nokkurs konar sjónhverfingum á tvívíðum fleti eða með því að skapa hluti í þrívídd. Þar kemur samspil ljóss og skugga iðulega við sögu og hann er kunnur af verkum sem sýna skuggavarp með ýmsum hætti. Yfirlitssýning á verkum Sigurðar Árna er sú fjórða í röð Listasafns Reykjavíkur og hluti af þeirri viðleitni safnsins að skrá og greina íslenska listasögu í gengum veglegar sýningar og útgáfu.

Þar eru valdir listamenn sem hafa á heilsteyptum ferli sínum skilað markverðu framlagi til þróunar íslenskrar listasögu..

Myndir af sýningu