Rax Rinn­ekangas: Spiritus Europaeus

Rax Rinnekangas: Spiritus Europaeus

Rax Rinnekangas: Spiritus Europaeus

Hafnarhús

-

Rax Rinnekangas er finnskur listamaður sem hefur hlotið  ýmsar viðurkenningar í heimalandi sínu bæði sem ljósmyndari, rithöfundur og skáld. Þessi fjölhæfi listamaður hefur gefið út skáldsögur, ljóð, smásögur og ritgerðir auk fjölda ljósmyndabóka, en hann hefur einnig unnið að kvikmyndagerð og tónlist. Hann hefur sýnt ljósmyndir sínar víða um Evrópu og vakið mikla athygli fyrir þann næmleik sem er að finna í viðfangsefnum hans. 

Í myndaflokknum Spiritus Europaeus kemur fram ákveðin sýn listamannsins á gamla meginlandið.

Í þessum stóru myndum hefur hann leitast við að gefa nokkra innsýn í það líf, sem er að finna meðal íbúa á útjöðrum álfunnar, nokkru utan þeirrar hröðu þróunar, sem einkennir Evrópu hin síðari ár. Þessi myndaflokkur frá hendi Rax Rinnekangas verður sýndur í ýmsum söfnum í Finnlandi og víðar í Evrópu á næstunni, jafnframt því sem út kemur ljósmyndabók í tilefni sýningarinnar..

Myndir af sýningu