Listvinnzlan: Ómur

Listvinnzlan: Ómur
Ásmundarsafn
-
Sýningin Ómur á sér rætur í Selárdal þar sem listafólk sem vinnur að verkum sínum í Listvinnzlunni skapaði verk í samtali við listheim Samúels Jónssonar.
Listvinnzlan er listamiðstöð og faglegur vettvangur í miðborg Reykjavíkur þar sem fatlað listafólk skapar og þróar list sína.
Þessi sýningin var á dagskrá Listahátíðar í Reykjavík sumarið 2026. Nú hefur hún ferðast í Ásmundarsafn og mætir þar verkum Ásmundar Sveinssonar í nýju samhengi, auk þess sem ný verk og nýir sýnendur hafa bæst í hópinn.
Í Selárdal myndaðist sterkur ómur milli verka listafólksins og sköpunar Samúels, sem var sjálfmenntaður og vann utan meginstrauma listalífsins eftir eigin sýn. Sú saga á enn erindi í dag. Fatlað listafólk býr yfir sterkum og persónulegum listrænum röddum en mætir enn hindrunum innan listasenunnar. Í Ásmundarsafni heldur samtalið áfram, nú í nánd við verk Ásmundar sem skapaði sér einnig einstakan heim þar sem list, arkitektúr og umhverfi mætast.
Sýningin vekur athygli á ólíkum leiðum inn í listina og á listafólki sem hefur mótað sitt eigið myndmál og á fullt erindi inn í miðju listalífsins. Þar mætast samtímalist og saga, ólíkar kynslóðir og ólík reynsla í verkum sem enduróma hvert í öðru. Ómur er því bæði framhald og nýr kafli; sýning sem varð til í samtali við Samúel Jónsson en finnur nýjan hljóm í Ásmundarsafni.
Listafólk: Andrea Gavern, Atli Már Indriðason, Ásdís Ásgeirsdóttir, Benedikta Rostan, Birkir Sigurðsson, Elín S.M. Ólafsdóttir (ESMÓ), Elín Fanney Ólafsdóttir, Elísabet Sóldís Þorsteinsdóttir, Erlingur Örn Skarphéðinsson, Esmeralda Lísa Sveinbjörnsdóttir, Frida Adriana Martins, Gígja Garðarsdóttir, Guðbjörg Lára Viðarsdóttir, Guðmundur Stefán Guðmundsson, Gunnar Már Pálsson, Harpa Rut, Helga Matthildur Viðarsdóttir, Hjördís Árnadóttir, Ingimar Azzad Torossian, Ísak Óli Sævarsson, Kári Hrafn Jónsson, Katrín Guðrún Tryggvadóttir, Kolbeinn Jón Magnússon, Kristján B. Rostan, Lilja Dögg Birgisdóttir, Luiza Katarzyna Kierzk, Margrét M. Norðdahl, Óskar Theódórsson, Rut Ottósdóttir, Sigrún Huld Hrafnsdóttir, Úlfhildur G. Einarsdóttir, Veronica M. Jarosz, Þórir Gunnarsson (Listapúkinn) og Þorvaldur Arnar Guðmundsson.
Ítarefni
Sýningarstjóri
Margrét M. Norðdahl
Kynningarmynd sýningar
Harpa Rut, Freyja, 2026.