Núna norrænt / Now Nordic

Núna norrænt - Now Nordic

Núna norrænt / Now Nordic

Hafnarhús

-

Sýning á því nýjasta í norrænni samtímahönnun. Hönnunarteymið Adorno fékk til liðs við sig sýningarstjóra frá Danmörku, Svíþjóð, Noregi, Finnlandi og Íslandi sem leituðu uppi spennandi nýja hönnun í hverju landi fyrir sig. Sýningin var fyrst sett upp á Chart listamessunni í Kaupmannahöfn haustið 2018, ferðaðist síðan til Lundúna og kemur nú til Íslands í tilefni Hönnunarmars

Í huga margra er hugtakið „norrænn“ orðið nokkurs konar samheiti yfir látlausan einfaldleika, augljóst notagildi og náttúruleg efni – en er sú merking orðsins enn í gildi? Alþjóðlega hönnunarfyrirtækið Adorno kynnir tímamótasýningu á nútímahönnun frá Norðurlöndunum fimm, sem miðar að því að sýna sameiginlega eiginleika og andstæða þætti í samtímahönnun frá Noregi, Finnlandi, Svíþjóð, Danmörku og Íslandi.

Sýningin Núna norrænt /Now Nordic er þróuð í samvinnu sýningarstjóra frá öllum löndunum fimm og á henni verða munir frá upprennandi og nafnkunnum hönnuðum sem vinna á mörkum listar, hönnunar og hannyrða. Það felur í sér bæði stafrænar og raunverulegar sýningar og því er ætlað að kynna þá fjölbreytni, vídd og þann metnað sem norræn hönnun býr yfir fyrir alþjóðlegum gestum – og kanna hvort það sem hefur einkennt norræna hönnun í aldanna rás sé enn til staðar í síbreytilegum heimi hnattrænnar sköpunar. HÖNNUÐIR

Danmörk:
Alexandru Murar
Astrid Tolnov
Gurli Elbækgaard
Jonas Edvard
Netter Andresen
Nikolaj Steenfatt
Stine Linnemann

Finnland:
Aalto+Aalto
Hanna Anonen
Maija Puoskari
Tero Kuitunen

Noregur: 
Cosmin Cioroiu og Kathrine Lønstad
Kim Thomé
Pettersen & Hein
Runa Klock

Svíþjóð:
Elsa Chartin
Fredrik Färg og Emma Maria Blanche
Lith Lith Lundin
Lotta Lampa
Sara Lundkvist

Ísland:
Garðar Eyjólfsson
Hugdetta ásamt 1+1+1
Magnús Ingvar Ágústsson
Ragna Ragnarsdóttir
Studio Brynjar & Veronika
Studio Flétta
Studio Hanna Whitehead
Tinna Gunnarsdóttir

SÝNINGARSTJÓRAR

Danmörk: 
Pil Bredahl
Finnland: 
Sebastian Jansson
Ísland: 
Hlín Helga Guðlaugsdóttir & María Kristín Jónsdóttir
Svíþjóð: 
Rebecca Ahlstedt
Noregur: 
Kråkvik & D'Orazio.

Myndir af sýningu

Myndir frá opnun

Ítarefni

Sýningarskrá

Umfjöllun fjölmiðla (skrár)

Sýningarstjóri/-ar

Adorno, Hlín Helga Guðlaugsdóttir, María Kristín Jónsdóttir, Pil Bredahl, Sebastian Jansson, Rebecca Ahlstedt, Kråkvik & D'Orazio

Umfjöllun fjölmiðla

Boðskort