Magnús Pálsson

Magnús Pálsson

Magnús Pálsson

Kjarvalsstaðir

-

Yfirlitssýning á verkum eftir Magnús Pálsson. Á sjöunda áratugnum áttu sér stað mikil umskipti í íslensku listalífi þegar framsæknir listamenn höfnuðu viðteknum og ráðandi hugmyndum fyrri kynslóða um listina. Þess í stað boðuðu þeir nýjar skilgreiningar á listhugtakinu handan við hefðbundið efni og aðferðir.

Magnús Pálsson var einn aðal þátttakandinn í þessum umbreytingum, bæði sem hugmyndasmiður og lærimeistari.

Allar götur síðan hefur Magnús kunnað að þróa á persónulegan hátt hugmyndalega listsköpun þar sem hann sprengir í sífellu hefðbundin landamæri milli listgreina jafnframt því sem hann skilgreinir upp á nýtt hlutverk og eðli listaverksins..