Fara beint í efni

Lína í átt að ljósi

Anna Jóelsdóttir, 2025

Lína í átt að ljósi

Hafnarhús

-

Hvað verður til þegar við gefum hlutunum tíma?

Þegar við fylgjum forvitninni án þess að vita fyrirfram hvert hún leiðir okkur?

Ný verk eftir Sólveigu Aðalsteinsdóttur, Eddu Jónsdóttur og Önnu Jóelsdóttur koma saman í sýningu sem dregur fram ólíkar aðferðir til sköpunar. Þótt listamennirnir vinni með ólík efni og myndmál eiga verk þeirra það sameiginlegt að byggjast á athugun, tilraunum og trausti á sköpunarferlinu. Línan gegnir þar mikilvægu hlutverki, ýmist sem skráning, leit, hugsun eða hreyfing. Línan er þannig ekki aðeins mynd eða form, heldur jafnframt aðferð til að rannsaka, hugsa og skapa.

Í verkum Sólveigar Aðalsteinsdóttur mætast teikning, staður og athugun. Hún hefur um langt árabil sótt myndefni í landslag, náttúru og hversdagslegt umhverfi, þar sem skráning, kortlagning og tengsl við staði skipa lykilhlutverk. Hjá Eddu Jónsdóttur verður teikningin að opnu rannsóknarferli þar sem form og myndir þróast í gegnum leit, endurtekningu og tilraunir. Í verkum Önnu Jóelsdóttur taka litur, hreyfing og efniskennd virkan þátt í sköpuninni og mynda kraftmikið samspil innan myndflatarins.

Þetta er í fyrsta sinn sem verk listamannanna eru sýnd saman. Sýningin skapar nýtt samhengi utan hefðbundinna skilgreininga á teikningu, málverki og abstraksjón og dregur fram sameiginlega afstöðu til sköpunar sem hefur mótast í gegnum áratuga iðkun. Þrátt fyrir langan starfsferil eru listamennirnir enn í virkri leit, þróa eigin myndheima og takast á við nýjar spurningar.

Á tímum sem einkennast af hraða, stöðugri framleiðslu og kröfu um sýnileika og nýjungar er hér beint sjónum að öðrum gildum í sköpun: samfellu, athygli og ræktarsemi. Hún dregur fram þá þekkingu sem verður til með tímanum, í gegnum endurtekningu, reynslu og náið samtal við efni og umhverfi. Þekkingu sem safnast upp í höndinni, auganu og líkamanum og verður ekki til í flýti. Sýningin minnir þannig á gildi þess að gefa hlutunum tíma, fylgja eigin forvitni og leyfa nýjum möguleikum að koma í ljós.

Ítarefni

Sýningarstjóri

Sunna Ástþórsdóttir

Kynningarmynd sýningar

Anna Jóelsdóttir, 2025

Listamenn