Veldu ár

2023 (5)
2022 (16)
2021 (21)
2020 (21)
2019 (27)
2018 (19)
2017 (21)
2016 (18)
2015 (20)
2014 (19)
2013 (17)
2012 (17)
2011 (22)
2010 (26)
2009 (25)
2008 (24)
2007 (26)
2006 (14)
2005 (16)
2004 (24)
2003 (32)
2002 (18)
2001 (20)
2000 (19)
1999 (13)
1998 (11)
1997 (14)
1996 (17)
1995 (17)
1994 (17)
1993 (22)
1992 (27)
1991 (24)
1990 (24)
1989 (25)
1988 (38)
1987 (38)
1986 (26)
1985 (28)
1984 (34)
1983 (28)
1982 (30)
1981 (26)
1980 (27)
1979 (21)
1978 (23)
1977 (21)
1976 (24)
1975 (19)
1974 (11)
1973 (11)
24.09.2022
26.02.2023

Jóhannes S. Kjarval: Fyrstu snjóar

Jóhannes Sveinsson Kjarval (1885-1972) er einn ástsælasti listamaður þjóðarinnar og fjölbreytt lífsverk hans nær yfir fjölda málverka af náttúru landsins, kynjaverum og fólkinu í landinu.

Kjarval fæddist að Efri-Ey í Meðallandi árið 1885 en ólst upp hjá ættingjum í Geitavík í Borgarfirði eystri til sextán ára aldurs. Um tvítugt tók hann sér írska konungsnafnið Kjarval og notaði það allt til æviloka. Árið 1902 flutti hann til Reykjavíkur, aðeins tveimur árum eftir að Þórarinn B. Þorláksson setti upp fyrstu myndlistarsýninguna á Íslandi. Kjarval sótti námskeið í teikningu og málun bæði hjá Þórarni og Ásgrími Jónssyni í Reykjavík en hugur hans stefndi út í heim. Hann sigldi til London árið 1911 en hélt þaðan til Danmerkur í formlegt nám við Konunglega listaháskólann í Kaupmannahöfn snemma árs 1912. Hann fór líka í áhrifaríkar ferðir til Ítalíu og Frakklands áður en hann svo var alkominn til Íslands og ákvað að gera íslenskt landslag að viðfangsefni sínu undir lok þriðja áratugarins.

Árið 1968 ánafnaði Kjarval Reykjavíkurborg stóran hluta listaverka sinna og persónulegra muna og hafa verk hans verið kynnt með ýmsu móti frá því Kjarvalsstaðir voru opnaðir árið 1973.

Verkin á sýningunni eru öll úr safneign Listasafns Reykjavíkur.

Sýningarstjóri/-ar: 
Edda Halldórsdóttir
Umfjöllun fjölmiðla (JPG): 

Smelltu á myndirnar til að skoða fleiri myndir á Instagram og póstaðu þínum eigin með því að merkja þær með #myllumerki sýningarinnar.
Mundu að fylgja Listasafni Reykjavíkur á @reykjavikartmuseum.

Viðburðir tengdir sýningu

Jóhannes S. Kjarval, Fyrstu snjóar,1953.
Kjarvalsstaðir
24. september 2022 - 10:00
Leikum að list
Kjarvalsstaðir
8. október 2022 - 13:00
Fimmtudagurinn langi
Hafnarhús, Kjarvalsstaðir
27. október 2022 - 17:00
Hafnarhús, Kjarvalsstaðir
29. desember 2022 - 17:00 til 22:00
Hafnarhús, Kjarvalsstaðir, Ásmundarsafn
3. febrúar 2023 - 17:00 til 23:00