Hafnarhús
-
Saga vídeólistarinnar er yfirleitt talin hefjast árið 1963 þegar kóreanski myndlistarmaðurinn Nam June Paik hélt sögufræga sýningu í galleríi Wuppertal í Þýskalandi. Þar notaði hann sjónvarpstæki til að sýna myndir af trufluðum sjónvarpsútsendingum. Sýningin markaði tímamót vegna þess að listamaðurinn beindi sjónum sínum að rafeindamerkinu sem sjónvarpsmyndin er gerð úr.
Nokkrum árum síðar komu upptökuvélar og segulbandstæki frá Sony á markað sem listamenn með ólíkan bakgrunn fóru að nota til að taka upp myndir sem þeir sýndu ýmist beint eða af myndböndunum. Þar með opnuðust áður óþekktir möguleikar fyrir listamenn sem fengu áhuga á þessum nýja miðli.
Vegna sérstakra aðstæðna á Íslandi varð töf á því að listamenn sem störfuðu hér á landi fengju tækifæri til að kynnast vídeótækninni. Flestir sem fengust við vídeó á tímabilinu sem sýningin spannar höfðu komist í kynni við miðilinn erlendis en þeir voru einnig nokkrir sem hófu að gera myndbönd á Íslandi þegar leið á níunda áratuginn. Markmiðið með sýningunni er að draga fram verk sem sýna fyrstu tilraunir íslenskra listamanna til að nota vídeómiðilinn til listsköpunar. Það gerist um svipað leyti og vídeóleigurnar héldu innreið sína í íslenskt menningarlíf og tónlistarmyndbönd urðu hluti af markaðssetningu nýrra hljómplatna.
Verkin á sýningunni eiga það sameiginlegt að hafa verið sýnd hér á landi í fyrsta skipti á árunum milli 1980 og 1990 en hafa fæst sést á sýningum síðan.
Eitt verkanna er eftir Steinu Vasulka, en hún var meðal frumkvöðla á sviði vídeólistar á heimsvísu og hefur starfað allan sinn feril í Bandaríkjunum. Ferill Steinu sker sig úr vegna þess að hún hafði lagt stund á vídeólist í rúman áratug og sýnt verk sín víða um heim þegar fyrstu vídeóverkin eftir íslenska listamenn byrjuðu að sjást á sýningum á Íslandi - þar á meðal hennar verk. Sýningunni er því ætlað að beina sjónum að níunda áratugunum og með hvaða hætti hann leikur mikilvægt hlutverk í sögu íslenskrar vídeólistar.
Sýningin beinir einnig sjónum að aðstæðum listamanna og vekur upp spurningar um varðveislu vídeóverka og hvernig sýna á verk frá þessu tímabili. Á sýningunni er að finna verk eftir eftirtalda listamenn: Steinu og Woody Vasulka, Magnús Pálsson, Ólaf Lárusson, Þór Elís Pálsson, Ástu Ólafsdóttur, Sigrúnu Harðardóttur, Sykurmolana, Oxsmá og Finnbjörn Finnbjörnsson..
Sýningarskrá
Sýningarstjóri/-ar
Margrét Elísabet Ólafsdóttir
Listamenn
Boðskort
Sýningarskrá JPG