Иorður og niður: Samtíma­list á norð­ur­slóðum

Иorður og niður: Samtímalist á Norðurslóðum

Иorður og niður: Samtímalist á norðurslóðum

Hafnarhús

-

Hver eru þau viðfangsefni, sögur og áskoranir sem listamenn í hánorðri eiga sammerkt, í ljósi þeirra breytinga sem eiga sér nú stað í þessum heimshluta?

Иorður og niður inniheldur verk bæði upprennandi og þekktari núlifandi listamanna frá þverskurði listafólks sem búsett er á norðausturströnd Bandaríkjanna, á kanadískum strandsvæðum, á Íslandi, á Norðurlöndunum auk innfædds listafólks frá öllu svæðinu. Listamenn eru landkönnuðir nútímans, þeir rannsaka áleitin efni og nýta sér tilfinningaleg áhrif listar og frásagnarmöguleika hennar sem hvata til breytinga. Loftslags- og umhverfisbreytingar, auk sársaukafullrar sögu nýlenduvæðingar innfæddra þjóða, hafa leitt til sköpunar nýrra listaverka sem fást við þungan straum félags-, efnahags, stjórnmála- og umhverfislegra áskorana um gjörvallt Norðrið.

Listafólk tekst líka á við þá blekkingu að Norðrið sé afskekkt auðn og skorar á hólm rómantíska tálmynd af ósnortnu landi og meintri einsleitni samfélaganna. Verkin sem valin hafa verið, í öllum miðlum, rekja sameiginlegar frásagnir á sviði samtímalistar og endurspegla nýjan skyldleika eða bil á milli samfélaga og þjóða svæðisins í kringum Norður Atlantshaf.

Иorður og niður er myndlistarsýning sem unnin í samstarfi þriggja listasafna, Portland Museum of Art í Maine-fylki í Bandaríkjunum, Bildmuseet í Umeå í Svíþjóð og Listasafns Reykjavíkur á Íslandi. Þar sýna 30 listamenn ný verk sem takast á við þær breytingar sem eru að verða á samfélagi, náttúru og lífríki á norðurslóðum í upphafi 21. aldarinnar og eru að stórum hluta tilkomnar vegna loftslagsbreytinga. Sýningin ferðast á milli samstarfsaðila frá febrúar 2022 til október 2023.

Henni fylgir vegleg sýningarskrá og fræðsludagskrá. Verkefnið nýtur stuðnings fjölmargra aðila, þ.á.m. Loftslagssjóðs, Arctic Cooperation Programme, Bandaríska sendiráðsins á Íslandi, Norræna menningarsjóðsins, Norrænu menningargáttarinnar og Eimskips..

Myndir af sýningu

Myndir frá opnun