Innrás I: Guðmundur Thoroddsen

Innrás I: Guðmundur Thoroddsen

Innrás I: Guðmundur Thoroddsen

Ásmundarsafn

-

Árið 2018 eru fyrirhugaðar fjórar innrásir inn í sýninguna List fyrir fólkið í Ásmundarsafni, þar sem verk myndhöggvarans eru skoðuð út frá ólíkum tímabilum á ferli hans. Völdum verkum hans er skipt út fyrir verk starfandi listamanna. Fyrsti listamaðurinn í röðinni er Guðmundur Thoroddsen.

Guðmundur hefur undanfarin ár beint sjónum sínum á kómískan hátt að karlmennskunni og notað til þess meðal annars skúlptúra úr keramík og viði. Gróf form og efnisnotkun Guðmundar býður upp á áhugavert samtal við verk Ásmundar. Þremur öðrum listamönnum hefur verið boðið að setja upp verk sín á sýningunni í einkasamtali við verk Ásmundar. Það eru Hrafnhildur Arnardóttir / Shoplifter, Margrét Helga Sesseljudóttir og Matthías Rúnar Sigurðsson. Öll vinna þau skúlptúra í ólík efni og veita verk þeirra áhugaverða sýn á þróun þrívíðrar myndlistar, efnisval og viðfangsefni..

Myndir af sýningu

Myndir frá opnun

Ítarefni

Sýningarstjóri/-ar

Sigurður Trausti Traustason

Listamenn

Boðskort