Hraun­mynd­anir

Hraunmyndanir, saparkitektar 2025

Hraunmyndanir

Hafnarhús

-

Lavaforming er framtíðarsýn í arkitektúr þar sem glóandi hraun er notað sem byggingarefni fyrir mannvirki og heilar borgir.

Þetta verkefni var framlag Íslands til 19. alþjóðlegu arkitektasýningar Feneyjatvíæringsins árið 2025. Sýningin segir sögu framtíðarsamfélags sem hefur lært að temja hraunflæði, nýta sér það og þannig breytt staðbundinni ógn í tækifæri til sköpunar.

Sagan gerist árið 2150 þegar Íslendingar hafa beislað hraunrennsli líkt og við gerðum við gufuaflið á 20. öld. Sagan er vörðuð með atburðum sem höfðu áhrif á þróun og tækni en markmið hennar er að sýna að arkitektúr getur verið krafturinn sem endurhugsar og mótar nýja framtíð. Hraunflæði getur innihaldið nóg byggingarefni fyrir grunnstoðir heillrar borgar sem rís á nokkrum vikum án skaðlegrar námuvinnslu og óendurnýtanlegrar orkuöflunnar.

Höfundar Lavaforming eru arkitektastofan s. ap arkitektar, þverfagleg rannsóknarstofa með áherslu á tilgátuverkefni framtíðarinnar. Í sýningarteyminu eru Arnhildur Pálmadóttir, Arnar Skarphéðinsson, Andri Snær Magnason, Björg Skarphéðinsdóttir hönnuður og Sukanya Mukherjee arkitekt frá s. ap arkitektum, Jack Armitage tónlistarmaður og margmiðlunarhönnuður, hönnunarstofan Studio Studio og Markús Þór Andrésson, sýningarstjóri. Miðstöð hönnunar og arkitektúrs sér um framkvæmd íslenska skálans í Feneyjum með stuðningi menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytisins.

Ítarefni

Sýningarstjóri

Markús Þór Andrésson