Hörður Karls­son: Fjórar árstíðir

Hörður Karlsson: Fjórar árstíðir

Hörður Karlsson: Fjórar árstíðir

Kjarvalsstaðir

-

Á sýningunni eru krítarmyndir. Hörður Karlsson byrjaði fyrir mörgum árum að nota krít til að gera frumdrög að olíumálverkum. Eftir það fór hann að mála krítarmyndir en heldur þó jafnframt áfram að mála með olíu og acryliclitum.  Málverkin sem hér eru sýnd eru nafnlaus.

Á því er einföld skýring. Stíllinn er "abstrakt expressionismi"; myndunum er ætlað að ná beint til áhorfandans, án þess að nafngiftir nái að spilla fyrir. Þannig er áhorfandinn frjáls að því að gefa ímyndunaraflinu lausan tauminn og fella sinn eigin dóm..