Högna Sigurð­ar­dóttir - Efni og andi í bygg­ing­ar­list

Högna Sigurðardóttir - Efni og andi í byggingarlist

Högna Sigurðardóttir - Efni og andi í byggingarlist

Kjarvalsstaðir

-

Þetta er fyrsta einkasýning á verkum Högnu Sigurðardóttur á Íslandi og er hún unnin í náinni samvinnu við Arkitektafélag Íslands. Högna er vel þekkt sem frumkvöðull á sviði byggingarlistar á Íslandi. Hún hefur með verkum sínum haft mikil áhrif á sjónrænt umhverfi okkar og þróun íslenskrar byggingarlistar, ekki síst með listrænni tilvísun í byggingarlistararfinn, dirfsku í notkun náttúrulegra efna auk skúlptúrel formsköpun bygginga sinna.

Högna var fyrst kvenna til að starfa sem arkitekt hérlendis, og hefur verið óhrædd við að fara frumlegar leiðir að verkum sínum, þar sem finna má tilvísun í þekkta erlenda arkitekta 20.

aldarinnar - svo sem Le Corbusier, Louis Kahn, Tadao Ando og fleiri, en jafnframt haldið á lofti afar persónulegri túlkun og nálgun að verkum sínum. Högna vakti á sínum tíma athygli fyrir að vinna byggingu og innviði hennar sem eina heild og steypa þannig innréttingar, húsgögn og blómaker með innra rými byggingarinnar, auk þess að forma nánasta umhverfi hennar sem órjúfanlegan hluta af heildarmynd hins manngerða umhverfis.

Högna útskrifaðist sem arkitekt frá École Nationale Supérieure des Beaux-Arts í París árið 1960 og hlaut sérstaka viðurkenningu skólans fyrir lokaverkefni sitt Garðyrkjubýli í Hveragerði. Þá þegar var áhugi hennar á sérkennum landsins, íslenskrar náttúru og veðurfars innblástur í frumlega og sérstaka byggingarlist, sem hún þróaði áfram í seinni verkum sínum. Högna hefur búið og starfað í Frakklandi allt frá námsárunum en jafnframt því skapað mörg bestu verka sinna hérlendis.

Högnu hefur hlotnast fjöldi alþjóðlegra viðurkenninga fyrir verk sín, og tók meðal annars sæti í hinni virtu Frönsku Byggingarlistarakademíu árið 1992, auk innlendra viðurkenninga svo sem menningarverðlauna DV í byggingarlist 1994 og heiðursorða Sjónlistaverðlauna Listasafns Akureyrar 2007. Íbúðarhús sem hún teiknaði að Bakkaflöt í Garðabæ hefur verið valið sem ein af 100 merkustu byggingum 20.aldarinnar í Evrópu.

Árið 2008 var Högna Sigurðardóttir kosinn heiðursfélagi Arkitektafélags Íslands.

Í tengslum við sýninguna verður gefin út ítarleg sýningarskrá um verk Högnu. Sýningarstjóri er Guja Dögg Hauksdóttir, deildarstjóri byggingarlistardeildar Listasafns Reykjavíkur og samstarfshópur er skipaður þeim Önnu Sóleyju Þorsteinsdóttur, Laufeyju Agnarsdóttur, Magnúsi Jenssyni og Sigríði Maack, arkitektum..

Myndir af sýningu

Ítarefni

Umfjöllun fjölmiðla PDF

Sýningarstjóri/-ar

Guja Dögg Hauksdóttir

Umfjöllun fjölmiðla

Listamenn

Boðskort