Guðrún Hrönn Ragn­ars­dóttir

Guðrún Hrönn Ragnarsdóttir

Guðrún Hrönn Ragnarsdóttir

Kjarvalsstaðir

-

Á meðan margir listamenn koma sér fyrir innan hefðarinnar, spyrna aðrir við fótum og spyrja sig í sífellu spurninga um eðli og stöðu listarinnar. Guðrún Hrönn Ragnarsdóttir er ein af þeim listamönnum sem fikrar einstigi persónulegrar sköpunar og dregur frumlegar ályktanir af þekktum liststefnum - minimalisma og "ready made". Á þessari sýningu kynnumst við nýjum verkum listakonunnar þar sem stíllinn er orðinn enn knappari en áður, þó svo aldrei sé langt í glingurskreyti eða kitsch, sem ávallt hafa einkennt verk hennar.

Guðrún Hrönn er fædd 1956, nam í MHÍ 1974-78, Den vrije academie psychopolis í Den Haag Hollandi 1978-79 og Jan van Eyck Academie í Maastricht Hollandi 1979-82..