Frið­arsúlan í Viðey 2019

Friðarsúlan í Viðey

Friðarsúlan í Viðey 2019

-

Friðarsúlan í Viðey var tendruð í 13. sinn þann 9. október og lýsir himininn til 8.

desember 2019.

Friðarsúlan í Viðey er hugarfóstur myndlistarmannsins, tónlistarmannsins og friðarsinnans Yoko Ono og er hugsuð sem leiðarljós fyrir heimsfrið. Verkið er í formi „óskabrunns“ en á hann eru orðin „Hugsa sér frið“ grafin á 24 tungumálum. Upp úr brunninum stígur ljóssúla sem er saman sett úr fimmtán geislum sem sameinast í einu sterku ljósi. Sex ljósgeislanna fara lárétt um göng á palli í kring um brunninn og er endurkastað upp á við með speglum. Pallurinn er þakinn þrenns konar íslensku grjóti – líparíti, grágrýti og blágrýti.

Þessi hönnun er táknræn tjáning Yoko Ono á leiðbeiningarverki sem hún gerði árið 1965 og nefnist Ljóshús. „Ljóshúsið er tálsýn, byggt úr tæru ljósi. Sláðu upp strendingum á ákveðnum tíma dags, við ákveðna kvöldbirtu sem streymir gegnum strendingana, og ljóshúsið birtist í miðju vallarins eins og táknmynd, nema hvað þessi táknmynd býður þér inngöngu ef þú vilt. Svo kann að fara að ljóshúsið birtist ekki daglega, alveg eins og sólin skín ekki daglega.“

Þann 9. október 2007 var listaverkið tileinkað minningu Johns Lennon sem hefði þá orðið 67 ára. Á hverju ári lýsir friðarsúlan frá 9. október (fæðingardegi Lennons) til 8. desember (dánardags hans).

Ljósið logar einnig frá vetrarsólstöðum til nýársdags og eina viku að vori. Rafmagnið í súluna er framleitt úr jarðhita og kemur frá Hellisheiðarvirkjun.

Uppsetning friðarsúlunnar er samstarfsverkefni Yoko Ono, Reykjavíkurborgar, Listasafns Reykjavíkur og Orkuveitu Reykjavíkur..

Ítarefni

Listamenn