Ferða­garp­urinn Erró

Erró, Mercury Astronauts in Spacesuits/Mercury geimfarar í geimbúningi, 1980, Oil on canvas/Olía á striga, 100 x 76 cm.

Ferðagarpurinn Erró

Hafnarhús

-

Ferðalög eru einkennandi fyrir líf og list Errós (f. 1932). Hann stundaði listnám í Reykjavík, Ósló, Ravenna og Florence, þar til hann settist að í París árið 1958 eftir nokkurra mánaða dvöl í Ísrael.

Mörg ferðalög fylgdu þar á eftir og má nefna sögulegar ferðir til New York í Bandaríkjunum, Moskvu í þáverandi Sovétríkjunum og Havana á Kúbu. Í heimsreisu sinni, 1971-1972, lá leið hans um Asíu. Frá því á 8. áratugnum hefur Erró skipt búsetu sinni milli Parísar í Frakklandi, Bangkok í Taílandi og Formentera á Spáni.

Ferðalög Errós gegna mikilvægu hlutverki í tilurð verka hans. Hvert sem hann fer sankar hann að sér hundruðum mynda.

Hann nýtir þær í samklippuverk sem smám saman verða að málverkum. Hugmyndin um ferðalög og tilfærslur birtist í mörgum verkum, þar sem hann notar mótíf eins og flugvélar, eldflaugar, lestir, fugla, hesta eða jafnvel ofurhetjur. Hún kemur enn fremur skýrt fram í seríum sem varða „heimsferð Maós“, „geimferðir“ og „konur frá Norður Afríku“. 

Öll verkin eru í eigu Listasafns Reykjavíkur..

Myndir af sýningu

Ítarefni

Umfjöllun fjölmiðla PDF

Sýningarstjóri/-ar

Danielle Kvaran

Listamenn