Kjarvalsstaðir
-
Eyborg Guðmundsdóttir (1924-1977) var sérstæður listamaður í íslenskum listheimi. Verk hennar byggja á fyrirmyndum geómetrískrar abstraktlistar þar sem sjónræn áhrif reglubundinna forma eru megináherslan, stíll sem kenndur er við op-list (e. optical).
Nú stendur Listasafn Reykjavíkur fyrir fyrstu yfirlitssýningunni á verkum hennar. Ferill Eyborgar spannaði fimmtán ár, en hún náði að þróa persónulegt myndmál sem einkenndist af einföldum formum og sjónarspili. Það skipti sköpum í listferli Eyborgar þegar hún flutti til Parísar 1959 eftir hvatningu frá þýsk-svissneska myndlistarfrömuðinum Dieter Roth. Þar kynntist hún meðal annars Georges Folmer sem var þungavigtarmaður í geómetrískri abstraktlist. Hann leiðbeindi henni og hafði það mikil áhrif á þróun listar hennar.
Eyborgu var fljótlega boðin þátttaka í alþjóðlegum hópi þrjátíu listamanna, sem gekk undir nafninu Groupe Mesure og var stofnaður 1960 af Georges Folmer. Á árunum 1961-1965 sýndi hún víða um Evrópu með Groupe Mesure. Á Parísarárunum naut hún einnig reglulega leiðsagnar frumkvöðuls op-listarinnar, Victors Vasarely, sem hafði áhrif á áhuga hennar á beinum áhrifum markvissra forma og reglu á sjónskynjun og upplifun. Eyborg sneri aftur til Íslands 1965 og tók hér þátt í þó nokkrum samsýningum, auk þess að halda þrjár einkasýningar. Fyrsta einkasýning hennar var í Bogasal Þjóðminjasafnsins 1965, önnur á Mokka 1966 en sú síðasta árið 1975 í Norræna húsinu.
Verk Eyborgar byggðu alla tíð á frumeiginleikum myndlistar og frumformum — hring, ferhyrningi, línu — út frá virkni þeirra innbyrðis og ertingu á sjóntaugina. Allan feril sinn hélt hún ótrautt áfram að rannsaka möguleika abstraktlistar og geómetríu og tók þannig þátt í því að þróa strangflatarmálverkið á ríkari hátt en nokkur annar íslenskur listamaður. Eyborg lést fyrir aldur fram árið 1977, aðeins rúmlega fimmtug..
Umfjöllun fjölmiðla PDF
Sýningarskrá
Sýningarstjóri/-ar
Heba Helgadóttir, Ingibjörg Sigurjónsdóttir
Umfjöllun fjölmiðla
Listamenn
Boðskort