Hafnarhús
-
Fjölskylduvæn sýning sem Ilmur Stefánsdóttir listamaður á veg og vanda að. Á sýningunni bregður Ilmur á leik með nokkur af stærri verkum Errós, brýtur þau niður í stóra, handhæga kubba sem hægt er að raða aftur samkvæmt frummyndinni, sem hangir á veggnum eða skapa ný verk. Kubbarnir eru mjúkir og bjóða upp á fleiri notkunarmöguleika, t.d.
að búa til sófa, borð, turna eða hvaðeina annað. Á veggjum sýningarsalarins eru einnig hugmyndir að leikjum sem lúta að myndefni kubbana, eins og að finna ákveðnar persónur, hluti og fyrirbæri og raða þeim saman og mynda þannig nýtt listaverk..