Erró: Heims­ferð Maós

Erró: Heimsferð Maós

Erró: Heimsferð Maós

Hafnarhús

-

Erró er einna fyrstur vestrænna listamanna til að tileinka sér goðsögn og myndir af Mao Zedong. Á árunum 1972 til 1980 málaði Erró seríuna Chinese Paintings, meira en 130 málverk sem segja sögu hins mikla leiðtoga sem fer sigurför um heiminn. Sérhvert málverk, líkt og flest málverk Errós allt frá árinu 1964, byggir á samklippu þar sem Erró stefnir saman tveimur myndum af ólíkum uppruna: kínverskum áróðursveggspjöldum og vestrænum túristamyndum frá þekktum áfangastöðum.

Erró ímyndar sér Maó forseta og félaga hans fara sigurför um heiminn, en í rauninni fór Maó aðeins tvívegis til útlanda, í bæði skiptin á flokksþing Kommúnistaflokksins í Moskvu. 

Kínverska serían er skáldskapur þar sem sviðsetning og nærvera Maós á mismunandi stöðum er háðsleg vísun í bylgju Maóismans sem reið yfir hópa vestrænna lista-, mennta- og stjórnmálamanna í kjölfar stúdentaóeirðanna í París í maí 1968. Hún hlutgerir í senn útópískan framtíðardraum og ótta við heimsútþenslu kínversku menningarbyltingarinnar. Það var Kínverska serían sem gerði Erró þekktan í alþjóðlegu samhengi. Sýningin í Hafnarhúsinu hefur að geyma málverk, samklippur og grafíkmyndir úr safneign Listasafns Reykjavíkur..

Myndir af sýningu

Myndir frá opnun

Ítarefni

Sýningarstjóri/-ar

Danielle Kvaran

Listamenn

Boðskort