Erla Þórar­ins­dóttir Corpus lucis sensitivus

Erla Þórarinsdóttir Corpus lucis sensitivus

Erla Þórarinsdóttir Corpus lucis sensitivus

Kjarvalsstaðir

-

Það hefur löngum verið viðfangsefni listamanna að finna leiðir til að verja verk sín gegn krafti sólarinnar sem í senn er skapandi og eyðileggjandi, þar til hringrásin getur hafist að nýju. Í þessu skyni forðast menn að láta dagsljósið skína á málverk og verja þau gegn sveiflum hita og raka, í þeirri von að fyrir slíka vernd nái listaverkin að lifa að eilífu. En ekkert lifir að eilífu.

Erla Þórarinsdóttir hefur sætt sig við þessa staðreynd tilverunnar.

Í stað þess að forða máverkum sínum frá birtu sólar hefur hún gert dagsbirtuna að virkum þátttakanda í þeirri listsköpun, sem lýkur raun aldrei. Í sýningunni "Corpus Lucis Senisitivus" hefur listakonan lokið sínum þætti í sköpuninni; listaverkin eru komin á sinn stað, en nú tekur við sköpunarferli sólarinnar.

Gestir geta á sýningartímabilinu fylgst með þeim breytingum sem verða á listaverkunum - og um leið hugleitt með hvaða hætti þeir sjálfir munu breytast á sama tíma..

Myndir af sýningu