Fara beint í efni

D54 Hugo Llanes: Bonita

D54 Hugo Llanes: Bonita

D54 Hugo Llanes: Bonita

Hafnarhús

-

Hugo Llanes (f.1990) er 53. listamaðurinn til að sýna í D-sal. Þar er listamönnum sem hafa mótandi áhrif á íslenska myndlistarsenu boðið að halda sína fyrstu einkasýningu í opinberu safni.

Á þessari sýningu fjallar Hugo um það margslungna ferli að aðlagast nýrri menningu sem innflytjandi. Hann nýtir sér undirstöður íslenskrar og mexíkóskrar menningar – tungumál, matarhefðir, listasögu og tónlist – til að kanna hvernig þessar hefðir blandast, hvaða hliðstæður koma í ljós og hvað það þýðir að tilheyra.

Hugo sækir innblástur í tungumálið og blæbrigði þess: í merkingu orða, tilfærslur á milli mála og þann misskilning sem getur kviknað í slíkum þýðingum. Reynsla Hugos sem innflytjandi felur í sér að hann þýðir í sífellu orð sín og hugsanir og við það koma villur og misskilningur óhjákvæmilega upp. Eftir því sem hann dvelur hér lengur tekur menningarleg sjálfsmynd hans hægum breytingum. Fyrir sýninguna skapaði Hugo hliðarsjálfið Bonitu sem hann staðsetur á milli menningarheima, þar sem túlkun og merking eru í stöðugri þróun. Orð eru þýdd úr einu tungumáli yfir í annað og merkingin og tilfinningin sem þeim fylgir breytist eða dofnar. Á sama hátt má segja að sjálf þeirra einstaklinga sem ferðast á milli landa í þeim tilgangi að setjast að, hvort sem það er af frjálsum vilja eða í neyð, breytist í kjölfarið. Bonita reynir að halda í sína fyrri sjálfsmynd og einkenni en á sama tíma leggur hún sig fram við að tilheyra nýju samfélagi.

Í D-sal mæta gestir verkum sem unnin eru í ólíka miðla og eru studd af burðarvirki úr stálrörum, þeim sömu og eru notuð í vinnupalla og stillansa, myndlíking fyrir ástand í vinnslu og umbreytingu. Pönk, berskjöldun og húmor setja svip sinn á sýninguna og hjálpa til við að miðla bæði sameiginlegri og persónulegri reynslu listamannsins sem innflytjanda á íslandi.

Hugo er fæddur í Mexikó en býr og starfar í Reykjavík. Hann er með meistaragráðu í myndlist frá Listaháskóla Íslands og BA gráðu í sjónlistum frá Universidad Veracruzana í Mexíkó. Hugo hefur sýnt víða og verið virkur þáttakandi í frumkvæðum sem miða að inngildingu minnihlutahópa í íslenska myndlistarsenu, svo sem verkefnið Komd’inn, félagasamtökunum Artists in Iceland Action Visa Group, og Get Together (GETA).

Ítarefni

Sýningarstjóri

Björk Hrafnsdóttir

Sérstakar þakkir

Roland Baulcomb, Erin Lewis, Laura López, Fríða Björg Pétursdóttir, Hrabba Einars Maríudóttir, Karó Einars Maríudóttir, Curver Thoroddsen, Brynjar Daðason, Benett Holgerson, Svava þorsteinsdóttir, Irene Arrendondo, Janosch Kratz, Svava þorsteinsdóttir, Quad Studios, Kaksi Agency, Vikram Pradhan, Alex Gonçalves, Ágústa Björnsdóttir, Evelyn Rodríguez, Sabine Fischer, Paul Kuraksin, Álfrún Pálmadóttir, Adam Flint

Styrktaraðilar

Myndlistarsjóður, Myndstef, COVE PARK and N.A.A.R.C.A Residency.

Listamenn