D49 Helena Margrét Jóns­dóttir

D49 Helena Margrét Jónsdóttir

D49 Helena Margrét Jónsdóttir

Hafnarhús

-

Það stafar engin ógn af gervikönguló og engin ilmur berst af nælonblómum.

Helena Margrét vinnur með sígilda eiginleika málverksins til að líkja eftir hinum sýnilega veruleika. Hugmyndir hennar birtast í eins konar töfraraunsæi á striga þar sem hún málar fyrirbæri af mikilli nákvæmni sem hún finnur ýmist í umhverfinu eða hinum stafræna heimi. Að auki eru þau viðfangsefni sem hún fangar oftar en ekki eftirlíking úr gerviefni af einhverju öðru. Þannig verður til tvöföld eftirlíking – fyrst í fyrirmyndinni og svo í eftirmyndinni.

Helena Margrét tengir þessi manngerðu gerviefni við ótta, langanir, kvíða og þrár. Efni og áferðir sem líkja eftir lífi, en munu ennþá standa óbreytt löngu eftir okkar tíma.

Helena Margrét Jónsdóttir (f. 1996) útskrifaðist með BA gráðu í myndlist frá Listaháskóla Íslands árið 2019 eftir að hafa stundað nám í myndlist við Konunglega Listaháskólann í Haag í Hollandi og Myndlistarskólann í Reykjavík. Nýlegar einkasýningar Helenu má telja_ Liquida_ (2021) í Plan X Art Gallery í Mílanó og_ Þú getur ekki fest þig í þínum eigin vef_ (2022) í Ásmundarsal. Helena tók einnig þátt í samsýningunni _Allt sem sýnist – Raunveruleiki á striga _á Kjarvalsstöðum 2020.

Sýningaröðin í D-sal hóf göngu sína árið 2007. Hér er listamönnum sem hafa mótandi áhrif á íslenska myndlistarsenu boðið að halda sína fyrstu einkasýningu í opinberu safni.

Alvöru, 2023
Alveg eins og alvöru fælni, 2023
Alveg eins og alvöru ósk , 2023

Myndir frá opnun

Ítarefni

Sýningarstjóri/-ar

Björk Hrafnsdóttir