D42 Klængur Gunn­ars­son: Krókótt

D42 Klængur Gunnarsson: Krókótt

D42 Klængur Gunnarsson: Krókótt

Hafnarhús

-

Klængur Gunnarsson er 42. listamaðurinn til að sýna í sýningaröð Listasafns Reykjavíkur í D-sal. Klængur er fæddur árið 1985 í Reykjavík en býr og starfar í Gautaborg í Svíþjóð.

Hann nam myndlist við Listaháskóla Íslands, við ljósmyndadeild Hochschule für Grafik und Buchkunst í Leipzig – Þýskalandi og stundaði framhaldsnám í Akademin Valand í Gautaborg í Svíþjóð þaðan sem hann útskrifaðist 2019. 

Með samsnúningi af heimildagerð og skáldskap, reynir Klængur að ná fram hlykkjóttu sjónarhorni á hversdagslega atburði og athafnir. Þaðan vill hann vekja upp spurningar hjá áhorfendum sem snúa meðal annars að mikilvægi þess að staldra við í hringrás daglegs lífs. Dagleg skrásetning hversdagsleikans í nánasta umhverfi leiðir af sér frekari úrvinnslu þar sem listamaðurinn endurgerir raunverulega atburði eða setur þá á svið með skáldlegum hætti. Þessi skrásetning fer fram með ýmsum hætti, til dæmis með ljósmyndun eða textagerð, en úrvinnsla fer fram í gegnum kvikmyndaverk og innsetningar.  

Sýningaröðin í D-sal hóf göngu sína árið 2007. Hér er listamönnum sem hafa mótandi áhrif á íslenska myndlistarsenu boðið að halda sína fyrstu einkasýningu í opinberu safni..

Myndir af sýningu

Ítarefni

Umfjöllun fjölmiðla (skrár)

Sýningarstjóri/-ar

Edda Halldórsdóttir

Listamenn

Boðskort

Boðskort