
Hafnarhús
-
Salir B, C, D, E, F
Listasafn Reykjavíkur hýsir útskriftarsýningu nemenda á BA stigi í myndlistardeild, hönnunardeild og arkitektúrdeild Listaháskóla Íslands.
Töfrabrögð - Pizza - Skrásetning - Vindorka - Neysluhyggja - Skömm -
Á samsýningu útskriftarnemenda Listaháskóla Íslands sýna yfir 70 nemendur í myndlist, hönnun og arkitektúr útskriftarverkefni sín. Verkin gefa innsýn inn í rannsóknir og vinnuferli nemenda síðustu ár, þar sem þau hafa þróað faglega nálgun og aðferðir.
Á sýningunni takast nemendur á við marghliða viðfangsefni með ólík tól í farteskinu. Í verkum þeirra endurspeglast vangaveltur um hamfarir, gestaþrautir og samfélagslegt sinnuleysi – pólitískar yfirlýsingar og góðlátlegt grín. Nemendur gera tilraunir með bæði efni og inntak. Niðurstöður fá form í ólíkum miðlum: Í höttum, málverkum, letrum og kynslóðahúsum veðurfara svo fátt eitt sé nefnt.
Allt þetta og meira innifalið.
Viðburðir og gjörningar sem verða á safninu á meðan á sýningu stendur verða settir inn síðar.