Veldu ár

2023 (1)
2022 (16)
2021 (21)
2020 (21)
2019 (27)
2018 (19)
2017 (21)
2016 (18)
2015 (20)
2014 (19)
2013 (17)
2012 (17)
2011 (22)
2010 (26)
2009 (25)
2008 (24)
2007 (26)
2006 (14)
2005 (16)
2004 (24)
2003 (32)
2002 (18)
2001 (20)
2000 (19)
1999 (13)
1998 (11)
1997 (14)
1996 (17)
1995 (17)
1994 (17)
1993 (22)
1992 (27)
1991 (24)
1990 (24)
1989 (25)
1988 (38)
1987 (38)
1986 (26)
1985 (28)
1984 (34)
1983 (28)
1982 (30)
1981 (26)
1980 (27)
1979 (21)
1978 (23)
1977 (21)
1976 (24)
1975 (19)
1974 (11)
1973 (11)
18.03.2006
23.04.2006

AFsprengi HUGsunar - sprengiverk Guðjóns Bjarnarsonar

Guðjón Bjarnason er kunnur fyrir öflug verk sín þar sem hann sprengir sundur stálrör og stillir brotunum saman á nýjan leik. Auk slíkra verka eru á sýningunni myndverk sem Guðjón vinnur á plaststriga með sérstakri tækni.

Myndverkin eru sýnd á jarðhæð Hafnarhúss, en á annarri hæð hússins eru að finna auk stakra eininga, tug kerfisbundinna samsetninga af sprengiskúlptúrum er þekja allt í senn gólf, veggi og loft með hundruðum mistættra sprengibrota er mynda eyðilegar en samfelldar heildir. Verkin teygja sig yfir í port Hafnarhússins en þar verður innsetningin "MurMur Woogie", fjögur tonn af sprengdum málstrendingum sem fluttir verða af sprengistað og endursviðsettir í portinu.

Guðjón hefur sagt um verk sín að í hnotskurn hverfist þau um sjálfskapað ástand, rými og hluti sem hafi í senn sundurgerst og á óafturkræfan hátt verið ýtt á ystu nöf en hafi engu að síður möguleika á birtingu heilsteyptrar samhangandi myndar í hugskotsjónum áhorfandans. Verkin séu þannig í megindráttum hugsuð sem persónuleg yfirlýsing um merkingu og hlutverk listarinnar í sjálfri sér innan samtímans.

Guðjón starfar bæði sem myndlistarmaður og arkitekt og á að baki margar einkasýningar á Íslandi og erlendis. Þá hafa verk hans verið á samsýningum víða um heim.

Listamaður/-menn: 
Boðskort: 
Sýningarskrá: 
Umfjöllun fjölmiðla pdf: 
PDF icon 10859108.pdf (2.07 MB)
PDF icon 10873841.pdf (3.02 MB)
PDF icon 9003615.pdf (1.16 MB)
PDF icon 9003617.pdf (1.15 MB)
PDF icon 9054467.pdf (2.09 MB)

Smelltu á myndirnar til að skoða fleiri myndir á Instagram og póstaðu þínum eigin með því að merkja þær með #myllumerki sýningarinnar.
Mundu að fylgja Listasafni Reykjavíkur á @reykjavikartmuseum.