Af ásettu ráði: Útskrift­ar­sýning Lista­há­skóla Íslands 2021

Af ásettu ráði: Útskriftarsýning Listaháskóla Íslands 2021

Af ásettu ráði: Útskriftarsýning Listaháskóla Íslands 2021

Hafnarhús

-

Listasafn Reykjavíkur hefur allt frá árinu 2003 hýst útskriftarsýningu nemenda á BA stigi í myndlistardeild, hönnun og arkitektúr og nemenda á MA stigi í hönnun í Listaháskóla Íslands. Verkin endurspegla nám, rannsóknir og listsköpun nemendanna. 

Texti frá sýningarstjórunum:
Það að finna hugmyndum sínum farveg er óvissuferðalag sem krefst hugrekkis og áræðni. Leiðin er sjaldnast vel stikuð og áfangastaðurinn er á sífelldri hreyfingu, ef hann er yfirhöfuð fyrir hendi.

Þetta gerir ferðina þó þeim mun æsilegri. Mörk eru þanin og nýjar slóðir kannaðar. Forvitni, útsjónarsemi og einskær ásetningur nemenda hafa nú leitt þá að þessum mikilvægu tímamótum, eftir nám sem hefur veitt þeim fjölbreytt tækifæri til að kanna hugmyndir og þróa færni.

Útskriftarsýning Listaháskólans 2021 er uppskeruhátíð ríflega sjötíu nemenda úr myndlistar-, arkitektúr- og hönnunardeildum á BA stigi og úr MA námi í hönnun. Efnistök nemenda eru margvísleg og nálgun hvers og eins einstök. Hér má finna ilmandi bókverk, landsliðsbúninga fyrir nýjar íþróttir, rottu í leit að osti lífsins, hljóðspegil og fullkomið augnablik.

Eins er fjallað um skynjun í geimnum, leitina að ástinni, myndbirtingu ofhugsunar og leiðir til að endurnýta gerviefni. Önnur verk leita að nýjum litheimum, gefa okkur innsýn inn í sögur sjómanna og velta upp hugmyndum um nýja byggð í Viðey.     

Hér eru hvorki einfaldar lausnir né órekjanleg sannindi borin á borð. Verkin birta okkur aftur á móti ferska sýn á það sem við töldum okkur þekkja – eða opna okkur nýjar víddir. Af ásettu ráði hvetjum við gesti til að draga inn andann, opna hugann og njóta uppskerunnar.

Ókeypis aðgangur..

Ítarefni

Umfjöllun fjölmiðla PDF

Sýningarstjóri/-ar

Una Björg Magnúsdóttir, Birgir Örn Jónsson, Signý Þórhallsdóttir

Umfjöllun fjölmiðla