Erró
Visite au musée Munch à Oslo (Heimsókn á Munch-safnið í Osló)
Breidd:
96 cm
Hæð:
99 cm
Flokkur:
Málverk
Ár:
1979
Í seríu sinni Kínversk málverk leiðir Erró hina löngu göngu Maós og hersveita hans á árunum 1934–1935 út fyrir landamæri Kína og út um allan heim. Í þessu tiltekna verki er glaðvær hópur ungra kínverskra menntamanna samankominn inni í herbergi á Munch-safninu í Osló. Erró nær þessari áhrifamiklu blöndu með því að stefna saman tveimur ólíkum myndum: Spring Breeze in Yangliu og Livets dans. Fyrri myndin, áróðursplakat frá 1975, upphefur flutning ungmenna úr borgunum í sveitirnar á tímum menningarbyltingarinnar í Kína, með áherslu á samstöðu og byltingaranda. Sú síðari, expressjónískt meistaraverk Munchs, lýsir hins vegar hverfulleika lífsins og ástarinnar með táknrænum persónum sem standa fyrir æsku, ástríðu og vonbrigði. Þetta myndmál skapar sláandi andstæður, annars vegar er hugsjónaákafi og hins vegar tilvistarspurningar. Angurvær tónn Munchs gefur einnig í skyn dapurlegri framtíð fyrir ungt kommúnistafólk, með vísun í erfiðleika framundan. Sé myndin skoðuð í dag endurspeglar hún breytta sýn á söguna. Útrás Kína sem stórveldis og aukið ferðafrelsi borgara þess hafa breytt viðhorfum – það sem áður þótti ótrúlegt, að sjá kínverska menntamenn á evrópskum listasöfnum, er nú orðið daglegt brauð í heimi menningarsamskipta. Danielle Kvaran