Fara beint í efni

Kristín Jóns­dóttir

Við Lauf­ásveg

Við Laufásveg / Kristín Jónsdóttir

Breidd:

122 cm

Hæð:

96 cm

Flokkur:

Málverk

Ár:

1938-39

Talsvert er til af Reykjavíkurmyndum frá fjórða áratug liðinnar aldar eftir íslenska málara, enda er það tímabil þorps- eða þéttbýlismálverks í íslenskri myndlist. Kristín Jónsdóttir fjallar ekki oft um Reykjavík í myndum sínum, en þær myndir sem hún gerir bera þó ekki yfirbragð skrásetningar eða frásagnar eins og gerist í myndum sumra listmálara frá þessu tímabili, heldur verður borgarlandslagið henni tilefni til hugleiðinga um birtu, form og óljós skil náttúrunnar og hins manngerða. Myndin sem hér um ræðir er máluð í vinnustofu Kristínar á Laufásvegi 69 þar sem við blasti þetta útsýni til suðurs, Öskjuhlíðin yst til vinstri, Helgafell og svo Bláfjöll lengst í fjarska. Aðalsteinn Ingólfsson segir svo í bók sinni, Kristín Jónsdóttir: Listakona í gróandanum: „Myndir hennar [sýna] útþenslu bæjarins, hvernig byggð og óbyggð mætast, og hvernig óbyggðin fer halloka. En í þessum myndum er skrásetning á vexti og viðgangi bæjarins auðvitað ekki mergurinn málsins, heldur eigindir birtunnar sem mýkir eða skerpir allar áherslur í mótífinu“ (bls. 152). Óhætt er að halda því fram að fáar myndir íslensks listmálara lýsi betur „því angurværa andrúmslofti sem fylgir sólarlagi á ísköldum vetrardegi, heldur en einmitt Við Laufásveg eftir Kristínu“.

Fleiri verk eftir Kristín Jónsdóttir

Frá Þingvöllum (Drekkingarhylur)
Kristín Jónsdóttir
Frá Þingvöllum (Drekkingarhylur) / Málverk
Skoða
Útsýn frá Laufásvegi
Kristín Jónsdóttir
Útsýn frá Laufásvegi / Málverk
Skoða
Kaldbakur v. Akureyri
Kristín Jónsdóttir
Kaldbakur v. Akureyri / Teikning
Skoða
Þrír hestar
Kristín Jónsdóttir
Þrír hestar / Málverk
Skoða
Landslag
Kristín Jónsdóttir
Landslag / Málverk
Skoða
Uppstilling - blóm
Kristín Jónsdóttir
Uppstilling - blóm / Málverk
Skoða
Reykjavík
Kristín Jónsdóttir
Reykjavík / Málverk
Skoða
Uppstilling
Kristín Jónsdóttir
Uppstilling / Teikning
Skoða
Sjá öll verk (9)