Fara beint í efni

Jón Engil­berts

Vetr­ar­dagur í Kópa­vogi

Vetrardagur í Kópavogi / Jón Engilberts

Breidd:

135 cm

Hæð:

100 cm

Flokkur:

Málverk

Ár:

1940-43

Jón Engilberts fluttist heim til Íslands haustið 1940 eftir sex ára búsetu í Kaupmannahöfn. Skömmu eftir heimkomuna hófst hann handa við að byggja sér hús á Flókagötu eftir eigin teikningu og Gunnlaugs Halldórssonar. Meðan á byggingunni stóð fengu Jón og kona hans inni í sumarbústað í Kópavogi. Þann tíma sem þau bjuggu þar gerði Jón flokk samtengdra mynda af fólki í landslagi. Um þær segir Ólafur Kvaran í bókinni Jón Engilberts: „Landslagið verður nú forsenda eða svið nýrra verka, þar sem fjallað er um fólk í náttúrunni eða að náttúran sjálf er skynjuð sem líking fyrir tilfinningalega reynslu.“ Þeir sem fjallað hafa um þessar myndir hafa bent á áhrifin frá Edvard Munch sem Jón hafði með sér frá lærdómsárum sínum í Noregi. Um Kvöld í Kópavogi, sem er nátengd Vetrardegi í Kópavogi, segir Björn Th. Björnsson: „Þar grípur hann á strengjum þeirrar innhverfu, expressionisku tjáningar sem honum er svo eiginleg. … Tætt landslagið, með mishljóma og óreglulegum litum, er í sjálfu sér ekki flytjandi neinnar ákveðinnar hugðar, né heldur fólkið í forgrunninum. En það er í sambandinu milli þess og náttúrunnar sem hinn tregafulli, titrandi strengur tekur að hljóma …“ (Björn Th. Björnsson: Íslenzk myndlist á 19. og 20. öld II, bls. 99).

Fleiri verk eftir Jón Engilberts

Ísland
Jón Engilberts
Ísland / Málverk
Skoða
Heimasætur
Jón Engilberts
Heimasætur / Málverk
Skoða
Stóð ég úti í tunglsljósi
Jón Engilberts
Stóð ég úti í tunglsljósi / Teikning
Skoða
Skjótt hefur sól brugðið sumri
Jón Engilberts
Skjótt hefur sól brugðið sumri / Teikning
Skoða
Sáuð þið hana systur mína
Jón Engilberts
Sáuð þið hana systur mína / Teikning
Skoða
Kveð ég milli vita
Jón Engilberts
Kveð ég milli vita / Teikning
Skoða
Ísland farsældar Frón
Jón Engilberts
Ísland farsældar Frón / Teikning
Skoða
Greiddi ég þér lokka við Galtará
Jón Engilberts
Greiddi ég þér lokka við Galtará / Teikning
Skoða
Sjá öll verk (16)