Fara beint í efni

Ásmundur Sveinsson

Vatns­berinn (stækkun)

Vatnsberinn (stækkun) / Ásmundur Sveinsson

Breidd:

148 cm

Hæð:

215 cm

Flokkur:

Skúlptúr

Ár:

1937

Verkið er staðsett í höggmyndagarði við Ásmundarsafn. Ásmundur vann verkið Vatnsberann í Kaupmannahöfn veturinn 1936–37. Árið 1967 var myndin steypt í brons og spruttu miklar deilur um myndefnið og staðsetningu þess þegar Fegrunarnefnd Reykjavíkur keypti verkið. Sex árum síðar var afsteypu af verkinu komið fyrir í höggmyndagarðinum við Sigtún. Þá var bronsverkinu í fyrstu komið fyrir í Öskjuhlíð í Reykjavík þar sem það stóð fram til ársins 2011 og var þá flutt á núverandi staðset við Lækjargötu. Myndbygging Vatnsberans skapar jafnvægi: Fötur og handleggir mynda samhverfu, vinstri fótur kemur fram inn á milli fatanna, en sá hægri aftur, þannig að grunnflöturinn er þríhyrndur. Kraftlínur Vatnsberans mynda því nánast pýramída séð allt um kring, en sú tegund myndbyggingar er þekkt úr listasögunni til að skapa festu og stöðugleika. Staða höfuðsins brýtur upp þessa kyrrstöðu sem hallar ögn, mýkir myndbygginguna og gefur í skyn hreyfingu.

Fleiri verk eftir Ásmundur Sveinsson

Nafnlaust (Slípaður steinn)
Ásmundur Sveinsson
Nafnlaust (Slípaður steinn) / Skúlptúr
Skoða
Undir friðar og landnámssól
Ásmundur Sveinsson
Undir friðar og landnámssól / Skúlptúr
Skoða
Sjómannaminnismerki
Ásmundur Sveinsson
Sjómannaminnismerki / Skúlptúr
Skoða
Undir friðar og landnámssól
Ásmundur Sveinsson
Undir friðar og landnámssól / Skúlptúr
Skoða
Vængbrotni fuglinn
Ásmundur Sveinsson
Vængbrotni fuglinn / Skúlptúr
Skoða
Þjóðlag
Ásmundur Sveinsson
Þjóðlag / Skúlptúr
Skoða
Tristan og Ísold
Ásmundur Sveinsson
Tristan og Ísold / Skúlptúr
Skoða
Kraftur konunnar
Ásmundur Sveinsson
Kraftur konunnar / Skúlptúr
Skoða
Sjá öll verk (427)