Fara beint í efni

Jóhannes S. Kjarval

Úr Gálga­hrauni

Úr Gálgahrauni / Jóhannes S. Kjarval

Breidd:

174 cm

Hæð:

113 cm

Flokkur:

Málverk

Ár:

1955-60

Um 1945 tók Kjarval að venja komur sínar í Gálgahraun á Álftanesi. Hann kom þar margsinnis á næstu tveimur áratugum og málaði þar nokkurn fjölda verka. Í Gálgahraunsmyndunum leggur Kjarval áherslu á nekt hraunsins og þau fjölbreytilegu, hvössu form sem þar er að finna, skreytt lággróðri. Einstaka sérkennilegir hraundrangar urðu honum einnig að yrkisefni. Hann átti sér að því er virðist eitt uppáhalds „stæði“ og málaði þar fjöldann allan af myndum. Meginmyndefni hans frá þessu sjónarhorni er fremur flatur hraunklettur og umhverfi hans en í forgrunni er oft hraunstrýta. Túlkun hans á myndefnum úr Gálgahrauni á þessu skeiði er fjölbreytileg. Nokkuð ber á verkum þar sem listamaðurinn bregður fyrir sig kúbísku myndmáli, sundurgreinir form jarðarinnar og túlkar hin fjölmörgu litbrigði er leynast í mosa og steinum.

Fleiri verk eftir Jóhannes S. Kjarval

Litaspjald
Jóhannes S. Kjarval
Litaspjald / Málverk
Skoða
Ofar skýjum (Flugsund)
Jóhannes S. Kjarval
Ofar skýjum (Flugsund) / Málverk
Skoða
Bleikdalsá
Jóhannes S. Kjarval
Bleikdalsá / Málverk
Skoða
Land og loft
Jóhannes S. Kjarval
Land og loft / Málverk
Skoða
Karitas
Jóhannes S. Kjarval
Karitas / Málverk
Skoða
Sænskir kvikmyndatökumenn
Jóhannes S. Kjarval
Sænskir kvikmyndatökumenn / Málverk
Skoða
Endurminning
Jóhannes S. Kjarval
Endurminning / Málverk
Skoða
Litaspjald
Jóhannes S. Kjarval
Litaspjald / Málverk
Skoða
Sjá öll verk (310)