Fara beint í efni

Jón Gunnar Árnason

Sólfar

Sólfar / Jón Gunnar Árnason

Breidd:

1600 cm

Hæð:

900 cm

Flokkur:

Skúlptúr

Ár:

1986

„Við eigum öll okkar draumabát, farartæki sem okkur dreymir um að sigla á burt inn í drauminn. Í þessum skipum mínum sameina ég mína eigin ímyndun nákvæmni og þekkingu bátasmiða frumstæðra þjóða gegnum aldirnar. Sólarskipið felur í sér fyrirheit um ónumið land.“ (Jón Gunnar Árnason) Verkið er staðsett við Sæbraut. Í tilefni af 200 ára afmæli Reykjavíkurborgar árið 1986 efndu íbúasamtök Vesturbæjar til samkeppni um útilistaverk. Sólfar Jóns Gunnars varð fyrir valinu og var frummyndin,lítill álskúlptúr, gefin Reykjavíkurborg til stækkunar. Sólfarið var sett niður við Sæbraut í fullri stærð og afhjúpað á afmæli Reykjavíkurborgar 18. ágúst 1990. Ári áður féll listamaðurinn frá, langt fyrir aldur fram, og náði því aldrei að njóta verksins í endanlegri mynd. Sólfarið er óður til sólarinnar og felur í sér fyrirheit um ónumið land, leit, framþróun og frelsi. Það er draumafley sem felur í sér von og birtu.

Fleiri verk eftir Jón Gunnar Árnason

Þrumufleygurinn
Jón Gunnar Árnason
Þrumufleygurinn / Teikning
Skoða
Sólfar (módel)
Jón Gunnar Árnason
Sólfar (módel) / Skúlptúr
Skoða
Sólarauga
Jón Gunnar Árnason
Sólarauga / Skúlptúr
Skoða
Loft
Jón Gunnar Árnason
Loft / Skúlptúr
Skoða
Taflmennirnir, 34 stk
Jón Gunnar Árnason
Taflmennirnir, 34 stk / Skúlptúr
Skoða
Kona Lots orðin að saltstólpa
Jón Gunnar Árnason
Kona Lots orðin að saltstólpa / Málverk
Skoða
Úr myndaflokknum „Boðun Maríu“,
Jón Gunnar Árnason
Úr myndaflokknum „Boðun Maríu“, / Teikning
Skoða
Lot og dætur + kona ganga burt frá Sódóma og Gomórru. Móses I.
Jón Gunnar Árnason
Lot og dætur + kona ganga burt frá Sódóma og Gomórru. Móses I. / Málverk
Skoða
Sjá öll verk (13)