Fara beint í efni

Örn Þorsteinsson

Sleðinn

Sleðinn / Örn Þorsteinsson

Breidd:

130 cm

Hæð:

80 cm

Flokkur:

Skúlptúr

Ár:

1998

Verkið er staðsett í Nauthólsvík. Verkið er útilistaverk sem Örn gerði fyrir útisýninguna Strandlengjuna sem Myndhöggvarafélagið stóð fyrir. Sýningin hófst meðfram suðurströnd Reykjavíkur í júní 1998 og stóð fram á haust árið 2000. Sleðinn er úr graníti frá Grænlandi. Í samtali við Morgunblaðið á meðan á sýningunni stóð talaði Örn um að Sleðinn væri tileinkaður börnum sem sækja hann heim. Eitt af meginþemum í list Arnar er að kynnast og ná sambandi við tiltekin efni og draga fram í dagsljósið myndir sem eru faldar í efniviðnum. Kljást við formin. Sleðinn er í raun lítill moli úr stórum steini sem Örn vann í Grænlandi. Úr sama steininum er verk í Grænlandi eftir Örn sem ber heitið Rússíbaninn.

Fleiri verk eftir Örn Þorsteinsson

Foldagná
Örn Þorsteinsson
Foldagná / Skúlptúr
Skoða
Á hjóli
Örn Þorsteinsson
Á hjóli / Skúlptúr
Skoða
Sumarundrið
Örn Þorsteinsson
Sumarundrið / Málverk
Skoða
Álfar
Örn Þorsteinsson
Álfar / Málverk
Skoða
Sjá öll verk (5)