Fara beint í efni

Gunnar Örn Gunn­arsson

Sálræn fóst­ur­eyðing

Sálræn fóstureyðing / Gunnar Örn Gunnarsson

Breidd:

80 cm

Hæð:

115 cm

Flokkur:

Málverk

Ár:

1971

Gunnar Örn Gunnarsson var sjálflærður myndlistarmaður en bjó að næmu litaskyni og tónlistargáfum sem nýttust honum vel á hartnær þrjátíu ára ferli. Gunnar Örn kom fyrst fram á sjónarsviðið snemma á áttunda áratugnum og vakti þá athygli fyrir kröftuga litameðferð og ofsafengna meðhöndlun mannslíkamans. Þar voru tveir listamenn honum mikilvægari fyrirmyndir en aðrir, breski listmálarinn Francis Bacon og bandarískur starfsbróður hans, Willem de Kooning. Af Bacon lærði Gunnar Örn að brjóta upp líkamsformið og tefla því fram með dramatískum hætti. Hvað de Kooning varðar, gætir áhrifa frá sitjandi konumyndum hans í mörgum myndum Gunnars Arnar auk þess sem uppbrot litanna og spaðaáferð á sér ýmsa hliðstæðu í verkum Bandaríkjamannsins. Á árunum 1968–74 ber töluvert á umfjöllun um ómanneskjulegt umhverfi mannsins og meðfylgjandi vanmátt og firringu hans í íslenskri myndlist. Þar gætir örugglega áhrifa frá því pólitíska umróti sem gekk yfir Vesturlönd á þessum árum, þar sem flest gildi voru tekin til endurskoðunar. Meðal helstu listmálara, sem fóru fram undir merkjum viðhorfs- og þjóðfélagsgagnrýni, voru Einar Hákonarson, Gunnar Örn, Eiríkur Smith og Róska, en hér má einnig nefna til sögunnar málverk og grafíkmyndir Jóhönnu Bogadóttur, Ragnheiðar Jónsdóttur, Jóns Reykdal, skúlptúra Helga Gíslasonar og veggteppi Hildar Hákonardóttur. Úti í heimi tók Erró síðan undir þá gagnrýni á ómennskuna sem birtist í verkum þeirra sem hér hafa verið nefnd.

Fleiri verk eftir Gunnar Örn Gunnarsson

Sálir
Gunnar Örn Gunnarsson
Sálir / Málverk
Skoða
Án titils
Gunnar Örn Gunnarsson
Án titils / Skúlptúr
Skoða
Þjóðsagnablues
Gunnar Örn Gunnarsson
Þjóðsagnablues / Málverk
Skoða
Ró
Gunnar Örn Gunnarsson
Ró / Málverk
Skoða
Þokan liggur á fjallinu
Gunnar Örn Gunnarsson
Þokan liggur á fjallinu / Málverk
Skoða
Horft á landið
Gunnar Örn Gunnarsson
Horft á landið / Málverk
Skoða
Óp náttúrunnar
Gunnar Örn Gunnarsson
Óp náttúrunnar / Grafík
Skoða
Módel á Þingvöllum
Gunnar Örn Gunnarsson
Módel á Þingvöllum / Grafík
Skoða
Sjá öll verk (13)