Erró
Sainte Agathe / Heilög Agatha
Breidd:
76 cm
Hæð:
99 cm
Flokkur:
Málverk
Ár:
1975
Þetta málverk Errós tilheyrir Geim-myndaröðinni(1974–1977), þar sem kvenpersónur fléttast oft saman við þemu sem tengjast bandarískum geimferðum. Serían er heiðursóður til Roberts McCall, bandarísks listamanns sem skrásetti geimverkefni NASA í meira en þrjátíu og fimm ár. Málverkið byggir á klippimynd og sameinar trúarlegt myndmál og vísindalega þætti. Erró sækir innblástur í Franciscos de Zurbarán, sem á árunum 1635 til 1640 málaði heilaga Agöthu með brjóst sín á bakka – tákn móðurhlutverks og endurnýjunar. Sagan segir að hún hafi neitað að láta undan ástleitni rómversks landstjóra, sem lét þá skera brjóst hennar af. Sankti Pétur vann síðan það kraftaverk að græða þau á aftur. Heilög Agatha er verndardýrlingur mæðra, hjúkrunarkvenna og kvenna með börn á brjósti. Í verkinu endurtúlkar Erró ímynd Agöthu í framtíðarsögu sem tengist geimferðalögum. Með því að fella geimskots eldflaugar til tunglsins inn í mynd Zurbaráns, undirstrikar hann sjónræn líkindi milli formanna – brjóstanna, tunglsins og ratsjárloftnetsins í bakgrunni. Í kjarna verksins felst spurningin um hvort vísindalegur og tæknilegur framgangur geri mannkyninu kleift að yfirstíga jarðnesk mörk og skapa nýja siðmenningu í geimnum. Danielle Kvaran