Erró
S. Clay Wilsonvíðátta
Breidd:
330 cm
Hæð:
220 cm
Flokkur:
Málverk
Ár:
1989
Í verkinu heiðrar Erró minningu bandaríska myndasöguteiknarans S. Clay Wilsons en hann var leiðandi í gerð tímaritsins Zap Comix sem vakti athygliá sjötta og sjöunda áratug 20. aldar. Erró raðar saman brotum úr teikningum Wilsons og dregur fram kröftugar línur hans og þéttan myndheiminn. Áberandi í verkinu er þekktasti karakter Wilsons, Köflótti skrattinn, sem bregður fyrir á þó nokkrum stöðum. Hann er þéttvaxinn, íklæddur köflóttum buxum og hefur lítil horn á höfði til marks um djöfulleika sinn. Endurtekin nærvera hans magnar upp óreiðuna í myndfletinum þar sem annars koma fyrir mótorhjólamenn, glaumgosar og ýmsar óstýrilátar fígúrur. Erró nýtir myndmál Wilsons til að skapa kraftmikið landslag sem heiðrar þann róttæka og frjálsa anda sem knúði áfram teiknimyndasenuna á þessum tíma.