Fara beint í efni

Erró

Portrett af Hall­dóri Laxness

Portrett af Halldóri Laxness / Erró

Breidd:

195 cm

Hæð:

130 cm

Flokkur:

Málverk

Ár:

1984-85

Allan sinn feril hefur Erró málað ævisögumálverk eða „frásagnarportrett“ af mismunandi þekktum einstaklingum. Árið 1985 afhjúpaði hann ævisögumálverk af Nóbelsskáldinu Halldóri Laxness og var það gjöf til Reykjavíkurborgar. Verkið tjáir sýn frásagnarmálarans á einn fremsta frásagnarrithöfund evrópskra bókmennta. Í myndbyggingunni og vali á myndefni er allt gert til að undirstrika mikilfengleik skáldsins. Málverkið byggist á mismunandi „andlitum“ Halldórs sem Erró hefur m.a. fengið að láni hjá þekktum íslenskum myndlistarmönnum. Megináhersla er lögð á tvær stórar ofurraunsæjar andlitsmyndir, málaðar með aðferðum helgimynda. Englarnir minna á trúhneigð skáldsins en eru líka fulltrúar hinnar himnesku fegurðar. Víkingaferðir, til lands og sjávar, vitna um sigurgöngu hins víðförla rithöfundar, baráttu hans og einnig minni úr skáldskap hans. Mount Everest, hæsta fjall í heimi, má eflaust túlka sem táknmynd þess hve Halldór rís hátt sem rithöfundur og mikilvægi hans í augum þjóðarinnar.

Fleiri verk eftir Erró

Manga-vegur
Erró
Manga-vegur / Málverk
Skoða
Alia
Erró
Alia / Málverk
Skoða
Foodscape 1964
Erró
Foodscape 1964 / Grafík
Skoða
Frumskógardrottningin
Erró
Frumskógardrottningin / Annað
Skoða
Facescape / Andlitavíðátta
Erró
Facescape / Andlitavíðátta / Grafík
Skoða
Magritte 1992
Erró
Magritte 1992 / Grafík
Skoða
Le Miró
Erró
Le Miró / Grafík
Skoða
Án titils
Erró
Án titils / Grafík
Skoða
Sjá öll verk (4.709)