Fara beint í efni

Erró

Pabbi Arp

Pabbi Arp / Erró

Breidd:

100 cm

Hæð:

60 cm

Flokkur:

Málverk

Ár:

1965

Um miðjan sjöunda áratuginn skapaði Erró nokkrar myndaraðir sem byggðu á sömu lögmálum um myndrænar andhverfur. Ein þeirra er Páfalist-röðin frá árinu 1965, þar sem hann stillir saman ljósmynd af Jóhannesi XXIII páfa („góða páfanum“, páfa fólksins), sem hann fékk af póstkorti, og endurgerðum myndum af módernískum málverkum. Útkoman verður sjónrænt andstæðuform sem fangar athyglina. Með þessari aðferð dregur Erró upp samsvörun milli föður nútímavæðingar kaþólsku kirkjunnar og hinna svonefndu „páfa“ nútímalistarinnar (Arp, Klee, Matisse, Léger, Mondrian, Capogrossi, Magnelli o.fl.). Tilgangurinn er gáskafullur, eins og sjá má af orðaleikjunum í titlum málverkanna („Papa Picasso“ og „Papa Braque“), þar sem „papa“ vísar bæði til páfa á ítölsku og föður á frönsku. Nafn raðarinnar, Páfalist, tengir svo saman „pope art“ og popplist á hnyttinn hátt. Þessi aðgerð er í senn myndbrjótur og glettni, þar sem hún ögrar valdhöfum ólíkra sviða og tíma með fjörugri óvirðingu. Danielle Kvaran

Fleiri verk eftir Erró

Manga-vegur
Erró
Manga-vegur / Málverk
Skoða
Alia
Erró
Alia / Málverk
Skoða
Foodscape 1964
Erró
Foodscape 1964 / Grafík
Skoða
Frumskógardrottningin
Erró
Frumskógardrottningin / Annað
Skoða
Facescape / Andlitavíðátta
Erró
Facescape / Andlitavíðátta / Grafík
Skoða
Magritte 1992
Erró
Magritte 1992 / Grafík
Skoða
Le Miró
Erró
Le Miró / Grafík
Skoða
Án titils
Erró
Án titils / Grafík
Skoða
Sjá öll verk (4.709)