Fara beint í efni

Erró

Odelvíð­átta / Odelscape

Odelvíðátta / Odelscape / Erró

Breidd:

300 cm

Hæð:

200 cm

Flokkur:

Málverk

Ár:

1982-83

Víðáttumyndir („scape“ myndir) Errós eru vitnisburður um þá sjónrænu ofgnótt sem einkennir fjöldamenninguna. Þar hrúgar hann saman í gríðarstór breiðtjaldsmálverk ákveðinni tegund af hlutum. Odelscape eða Odelvíðátta sækir efnivið sinn í blekteikningar Alans Odle frá árunum 1920–30 sem ætlaðar voru fyrir útgáfu á Kímnisögum (Contes drôlatiques) eftir Balzac og Gargantúa eftir Rabelais. Erró kynntist þessum myndum á sýningu á verkum Odle þar sem vinur hans Claude Givaudan var sýningarstjóri og fékk þær lánaðar. Hann breytti vinnsluaðferðum sínum þegar hann málaði þetta verk, að minnsta kosti á fyrstu stigum vinnunnar. Hann byrjaði ekki á því að gera klippimynd eins og fyrir aðrar víðáttumyndir sínar. Hann málaði hverja teikningu fyrir sig fríhendis á strigann og notaði ekki myndvarpa. Í teikningum Odle er línuskriftin afar frjálsleg og litmynd Errós dregur dám af þessu frjálsa flæði með sínum bugðóttu og munúðarfullu línum og hinni liðugu og kraftmiklu pensilskrift. Danielle Kvaran

Fleiri verk eftir Erró

Manga-vegur
Erró
Manga-vegur / Málverk
Skoða
Alia
Erró
Alia / Málverk
Skoða
Foodscape 1964
Erró
Foodscape 1964 / Grafík
Skoða
Frumskógardrottningin
Erró
Frumskógardrottningin / Annað
Skoða
Facescape / Andlitavíðátta
Erró
Facescape / Andlitavíðátta / Grafík
Skoða
Magritte 1992
Erró
Magritte 1992 / Grafík
Skoða
Le Miró
Erró
Le Miró / Grafík
Skoða
Án titils
Erró
Án titils / Grafík
Skoða
Sjá öll verk (4.709)